Fara í efni
Aron Einar Gunnarsson

Úrslitaleikur 5. deildar og annað skemmtilegt

Handboltavertíðin er hafin, fyrsta umferð í Olísdeildum karla og kvenna gengin um garð. KA komið með fyrsta sigurinn, en Þór og KA/Þór töpuðu sínum viðureignum í fyrstu umferðinni. SA-konur hófu leik í Toppdeildinni um liðna helgi með sigri á Íslandsmeisturum SR og eiga heimaleik aftur um næstu helgi.

Fótboltinn er svo enn á fullu og kaflaskil bæði hjá konum og körlum því hefðbundnum deildakeppnum er lokið og Bestu deild kvenna og karla tvískipt fyrir lokakaflann. Leikjadagskráin loksins komin í ljós hjá körlunum eftir mikla spennu í báðum deildum undanfarið, en aðeins eftir að staðfesta leikdaga hjá konunum.

Akureyrarliðið Hamrarnir tryggði sér um liðna helgi sæti í 4. deildinni að ári. Hamrarnir og Smári mættust í undanúrslitum. Eftir 2-2 jafntefli á útivelli í fyrri leiknum mættust liðin á Akureyri á laugardag og þar var jafnt, 1-1, að loknum 90 mínútum. Hamrarnir tryggðu sér síðan 3-2 sigur með tveimur mörkum í framlengingu. Tvö lið fara upp úr 5. deildinni og með sigrinum á Smára tryggðu Hamrarnir sér sæti í 4. deildinni, ásamt Skallagrími, sem hafði betur gegn Stokkseyringum, einnig í framlengingu. Hamrarnir og Skallagrímur mætast í úrslitaleik um deildarmeistaratitil 5. deildar á Akureyri á laugardag.

FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER - handbolti

Fyrsti heimaleikur Þórs í Olísdeildinni á dagskrá á fimmtudagsvköld. Akureyri.net hefur nú þegar hitað upp fyrir handboltann með umfjöllun og viðtölum við þjálfara - sjá hér.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 2. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19
    Þór - HK

FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER - handbolti

KA byrjar Olísdeildina á tveimur útileikjum, vann HK í fyrstu umferðinni og sækir Víkinga heim í Safamýrina á föstudagskvöld. Akureyri.net hefur nú þegar hitað upp fyrir handboltann með umfjöllun og viðtölum við þjálfara - sjá hér.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 2. umferð
    Virkið í Safamýri kl. 20:15
    Víkingur - KA

LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER - fótbolti, íshokkí, handbolti

Það er ekki á hverjum degi sem úrslitaleikir eru spilaðir á Akureyri, en einn slíkur er á dagskrá á laugardaginn þegar liðin sem færast úr 5. deild upp í þá fjórðu bítast um deildarmeistaratitil 5. deildar. 

  • Fótbolti
    5. deild karla, úrslitaleikur
    KA-völlur (Greifavöllurinn) kl. 15
    Hamrarnir - Skallagrímur

Annar heimaleikur á dagskrá hjá SA-konum á laugardag eftir öruggan sigur á Íslandsmeisturunum í fyrsta leik.

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - Fjölnir

Heimaleikur hjá KA/Þór á laugardag í 2. umferð Olísdeildarinnar. Liðið hóf keppni í Olísdeildinni um liðna helgi með heimsókn til Vestmannaeyja, en akureyri.net mun hita upp og fara yfir veturinn hjá KA/Þór í aðdraganda leiksins á laugardaginn.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 2. umferð
    KA-heimilið kl. 17
    KA/Þór - Haukar

SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER - fótbolti

Bæði Akureyrarliðin í Bestu deild karla hefja leik í neðri hlutanum sunnudaginn 13. september og eiga þá bæði útileik.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 1. umferð
    Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 14
    FH - KA

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 1. umferð
    Valsvöllur (N1 völlurinn að Hlíðarenda) kl. 14
    Valur - Þór

Stöður í deildum og leikjadagskrár

Fótbolti

Handbolti

Íshokkí


Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.