Andri Snær: Ekkert að hugsa um spána
Andri Snær Stefánsson, þjálfari karlaliðs KA í handknattleik, er ánægður með undirbúning liðsins fyrir komandi keppnistímabil í Olísdeildinni. Hann segir hópinn spennandi og gerir ekki ráð fyrir frekari styrkingum, þó alltaf sé fylgst með því sem er í boði. KA-liðinu er spáð fjórða sæti Olísdeildarinnar í vetur í spá fyrirliða og þjálfara en fyrir síðasta tímabil var liðinu spáð 10. sætinu. KA-menn gáfu þeirri spá langt nef og komust alla leið í undanúrslit Íslandsmótsins en Andri Snær segist ekkert hugsa um hvernig spáin lítur út.
Í vikunni var greint frá því á vefsíðu KA að Svavar Ingi Sigmundsson, sem verið hefur yfirþjálfari hjá handknattleiksdeild KA, sé kominn í stærra hlutverk hjá deildinni. Hann hafi verið ráðinn yfirmaður handboltamála hjá félaginu, sem sé liður í áframhaldandi uppbyggingu handboltans hjá KA. Í fréttinni á vef KA segir að félagið hafi „mikla trú á því að Svabbi verði áfram leiðandi afl í þeirri vegferð að taka áfram skref fram á við bæði hvað varðar starf yngriflokka og meistaraflokka með aukinni ábyrgð sem felst í hinu nýja starfi.“

„Gulir og glaðir“ í KA-heimilinu. „Ég vil hvetja okkar frábæra KA-fólk til að halda áfram að koma á okkar leiki og vera með okkur í baráttunni,“ segir Andri Snær Stefánsson þjálfari KA. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Fyrsti heimaleikurinn sá stærsti
- Fyrsti leikur KA í Olísdeildinni er útileikur gegn HK kl. 19 í kvöld og er það fyrsti leikur deildarinnar
- Í annarri umferð tekur við annar útileikur – gegn Víkingi föstudagskvöldið 11. september
- Fyrsti heimaleikurinn verður sannkölluð veisla. KA tekur á móti grönnum sínum í Þór miðvikudaginn 16. september kl. 19
Þess má einnig geta að KA efnir til kynningarkvölds á morgun, föstudaginn 4. september kl. 19, í kjallara KA-heimilisins. Andri Snær kynnir leikmannahópinn, veitingasala verður á svæðinu og að sjálfsögðu sala ársmiða. Þá verður einnig sérstök forsala á kynningarkvöldinu fyrir ársmiðahafa á nágrannaslag KA og Þórs.
Ekki að leita að styrkingum
Andri Snær segir að nokkrir leikmenn hafi komið inn í undirbúningstímabilið eftir meiðsli, og því hafi þurft að fara varlega af stað með þá, en að öðru leyti hafi liðið æft af miklum krafti. „Við erum búnir að æfa virkilega vel, á miklu tempói í bland við styrktaræfingar. Við höfum átt góðar æfingavikur og notað tímann vel í að fara yfir okkar hluti. Við höfum líka notað æfingaleikina til að koma okkur í takt og erum spenntir að byrja Íslandsmótið,“ segir Andri Snær.

Svavar Ingi Sigmundsson var í sumar ráðinn yfirmaður handboltamála hjá KA. Mynd af vef félagsins.
Þjálfarinn segir stöðuna á leikmannahópnum góða. Flestir þeirra sem voru að glíma við meiðsli í upphafi undirbúningstímabilsins séu nú komnir í gott stand. „Daði Jónsson, fyrirliðinn okkar, er enn meiddur eftir hásinaslit en það styttist í hann. Giorgi Dikhaminjia fór í aðgerð í síðustu viku en við reiknum með að hann verði klár eftir áramót. Úlfar Örn Guðbjargarson og Eyþór Nói Tryggvason eru líka á meiðslalistanum. Það er minniháttar hjá Eyþóri en Úlfar er á leið í aðgerð og verður klár eftir áramót.“
Aðrir leikmenn eru hins vegar klárir í slaginn og Andri Snær er ánægður með þann hóp sem hann hefur úr að moða. „Við erum að mínu mati með spennandi lið og erum ekki að leita að frekari styrkingum, þó við skoðum ávallt hvað er í boði til að auka víddina í KA-liðinu,“ svarar Andri Snær þegar hann er spurður um hvort hópurinn sé orðinn endanlegur. Eins og Andri kom inn á þá er hornamaðurinn Giorgi Dikhaminjia frá vegna meiðsla en hann fór í aðgerð á hné og verður frá í einhverja mánuði. KA fékk Andra Frey Friðriksson hornamann að láni frá Aftureldingu til áramóta til að fylla skarð Giorgis.

Heimir Örn Árnason, til vinstri, og Andri Snær Stefánsson. Heimir Örn var í sumar ráðinn aðstoðarþjálfari Andra Snæs.
„Einn leikur í einu“
KA er spáð fjórða sæti Olísdeildarinnar í spá þjálfara og forráðamanna liðanna. Andri Snær segir þá spá hins vegar ekki hafa mikil áhrif á undirbúning KA-manna. „Spá er bara spá og við erum nákvæmlega ekkert að spá í henni, satt best að segja.“ Markmiðið sé fyrst og fremst að ná stjórn á eigin leik og þeim stöðugleika sem þurfi til að ná árangri yfir heilt tímabil.
„Olísdeildin er krefjandi deild og allir leikir eru erfiðir. Við sjáum reglulega óvænt úrslit og mikið af ungum strákum sem vilja sanna sig. Við þurfum að einbeita okkur að einum leik í einu og það er hlutverk liðsheildarinnar að stilla okkur rétt af,“ segir Andri Snær.
KA byrjar tímabilið á útivelli gegn HK og Andri Snær segir spennuna vera mikla eftir langan undirbúning. „Einn leikur í einu og við erum hrikalega spenntir að byrja loksins að keppa.“
Hvetur KA-fólk til að mæta
Að lokum sendir Andri Snær kveðju til stuðningsmanna KA og hvetur þá til að halda áfram að fjölmenna á leiki liðsins. „Ég vil hvetja okkar frábæra KA-fólk til að halda áfram að koma á okkar leiki og vera með okkur í baráttunni. Við byrjum á útileik gegn HK og vona að sem flestir gulir og glaðir í borginni mæti og taki þátt í fjörinu með okkur í fyrsta leik Íslandsmótsins,“ segir Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA.

Mikill fjöldi fólks mætti í KA-heimilið í skapaði frábæra stemningu þegar KA tók á móti Þór í nóvember á síðasta ári. Fyrsti heimaleikur KA í vetur er á móti Þór miðvikudaginn 16. september. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Breytingar á leikmannahópi KA frá síðasta tímabili
Andri Freyr Friðriksson frá Aftureldingu (á láni)
Ari Valur Atlason
Guðmundur Imsland - hættur
Leó Friðriksson - hættur