Fara í efni
Aron Einar Gunnarsson

Hetjurnar fá milljón annað árið í röð

Forráðamenn píludeildar Þórs færðu Hetjunum – félagi langveikra barna á Norðurlandi, eina milljón króna að gjöf á dögunum. Þetta er annað árið í röð sem píludeildin gefur félaginu þessa upp en féð safnaðist í góðgerðarleik sem deildin var með á Opna Akureyrarmótinu í Sjallanum, Sjally Pally,  sem fram fór fyrr á árinu.

Á myndinni að ofan halda hjónin Helga Ósk Snædal Þórormsdóttir og Bjarki Bjarnar Ingason frá Hetjunum á táknrænnni ávísun. Aðrir á myndinni eru allt stjórnarmenn í píludeildinni, frá vinstri: Garðar Gísli Þórisson, Dóra Óskarsdóttir, Ingi Þór Stefánsson, Óskar Jónasson og Darri Hrannar Björnsson.

Góðgerðarleikurinn gekk þannig fyrir sig eins og áður að í hvert skipti sem einhver keppandi náði hæsti skori, 180, söfnuðust 5.000 krónur. Það voru fjögur fyrirtæki, sem Þórsarar sömdu við, sem greiddu í pottinn: Skógarböðin, Tengir, Eyjabiti og Coca-Cola.

Fyrirtækin hækkuðu í milljón

Alls náðu keppendur 144 sinnum hæsta skori (sem er bæting frá því árið áður þegar það takmark náðist 116 sinnum) og eins og talnaglöggir átta sig á hefðu Hetjurnar átt að fá 720.000 krónur miðað við það, „en fyrirtækin endurtóku leikinn frá því í fyrra og ákváðu sameiginlega að hækka styrkinn í eina milljón króna. Við erum mjög þakklát fyrir þann mikla samhug sem þau sýndu þannig í verki,“ segir Davíð Örn Oddsson formaður píludeildar Þórs.

Davíð segir að góðgerðarleikurinn hafi reynst frábær viðbót við skemmtilegt mót og keppendum þyki augljóslega mjög ánægjulegt að geta kastað pílunum til góðs í þágu Hetjanna.