Fara í efni
Amtsbókasafnið

Hvað er betra en töfrar starfsfólks bókasafna?

AF BÓKUM – 95

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Aija Burdikova

_ _ _

The Spellshop-serían eftir Sarah Beth Durst
 
Mér finnst skemmtilegt að lesa kósýbækur sem láta manni líða vel, sérstaklega þegar veturinn nálgast. Þessi sería finnst mér einstaklega hugguleg og skemmtilega furðuleg. Það er meira að segja starfsfólk bókasafna í aðalhlutverki í fyrstu tveimur bókunum í seríunni. Hvað er betra en það?
 

Bækurnar hafa ekki verið þýddar og eru bara til á ensku á Amtsbókasafninu á Akureyri. Sú fyrsta heitir The Spellshop (Galdrabúð). Þegar ofbeldisfull bylting skellur á og kveikt er í bókasafninu flýja Kiela, bókavörðurinn, og aðstoðarmaður hennar, lifandi og gangandi veðhlaupari, með fimm kassa af bönnuðum galdrabókum. Þau halda til á afskekktu og vanræktu æskuheimili Kielu á eyju þar sem samfélagið samanstendur af sjómönnum og bændum. Þar ríkir skortur á töfrum og uppskeran því farin að bregðast. Kiela þarf á tekjum að halda en vill líka hjálpa heimamönnum sem eiga í erfiðleikum. Hún ákveður því að nýta ólöglegu galdrabækurnar til að hjálpa þeim.

Önnur bókin, The Enchanted Greenhouse (Töfragróðurhúsið), fjallar um Pernu, fyrrverandi starfsmann bókasafns, sem var breytt í styttu fyrir að nota töfra án leyfis og búa til lifandi veðhlaupara! Sex árum síðar er hún endurvakin til að bjarga töfragróðurhúsum á eyju þar sem aðeins einn maður býr, hinn fúllyndi garðyrkjumaður Yarrow. Perna er einstaklega flink í tungumálum og hefur því lært að koma töfrum af stað, þrátt fyrir að slíkt sé ólöglegt. Þá hefst vinnan við að bjarga gróðurhúsunum.

Ég mæli með þessum bókum fyrst og fremst fyrir stemninguna sem þær skapa. Þar að auki eru aukapersónurnar í seríunni sérstaklega skemmtilegar. Þar má nefna Kaz, lifandi veðhlauparann sem Perna bjó til, Emeral, vængjaðan kött, og Lotti, lifandi rós. Galdrabúð finnst mér tilvalin haustlesning, enda kemur sultugerð þar við sögu. Atburðirnir í Töfragróðurhúsinu gerast hins vegar að vetri til og því er tilvalið að lesa hana þegar allt er orðið hvítt úti en notalegt inni, undir teppi með tebolla í hönd og kertaljós sem lýsir upp skammdegið.

Á safninu eigum við líka ungmennabókina The Faraway Inn eftir sama höfund. Ég hef ekki lesið hana ennþá en er spennt fyrir því að prófa hana!