Fara í efni
Amtsbókasafnið

Áhugaverð innsýn í hversdag 19. aldar

AF BÓKUM – 90

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Reynir Elías Einarsson

_ _ _

Annáll 19. aldar

Mikið er til af sögulegum heimildum um íslenskt samfélag á fyrri tímum, og eitt áhugaverðasta safnið af því tagi er Annáll nítjándu aldar. Verkið veitir ítarlega innsýn í líf og hversdag landsmanna á tímabili sem mótaði þjóðina með margvíslegum hætti og spannar breitt svið atburða úr öllum landshlutum.
 
Nítjánda öldin var jafnframt afar viðburðarík í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og er þeim stóru atburðum gerð ágæt skil í bókunum. Sérstaklega er gaman að lesa um stóra áfangann árið 1874 þegar ný stjórnarskrá tók gildi, en þeim tímamótum var fagnað með hátíðarhöldum um allt land ásamt heimsókn Kristjáns níunda.
 
Uppsetning bókanna er fastmótuð og tekið er fyrir eitt ár í einu. Byrjað er á árferði og síðan koma langar upptalningar á mannslátum, þar sem lát embættismanna, presta og kvenna þeirra eru tíunduð, ásamt prófgráðum og embættisveitingum. Þótt þessar þurru skráningar séu eflaust algjört lostæti fyrir fræðimenn, eru þær síður til þess fallnar að halda athygli þess sem leitar að grípandi lesefni.
 
Inn á milli leynast þó sannkallaðar perlur. Þegar flett er yfir í kafla á borð við „Slysfarir og skaðar“ eða „Ýmis tíðindi“ lifnar sagan við. Þar kennir ýmissa grasa og víða er að finna litríkar lýsingar á hversdagslegu amstri, afrekum, svaðilförum og jafnvel hneykslismálum. Til að mynda má sjá þar bráðskemmtilegar frásagnir af hinum litríka flakkara Sölva Helgasyni og fölsun hans á sýslupassa, sem er birtur í heild sinni. Þær frásagnir draga upp ljóslifandi mynd af liðnum tíma.
 
Það er því fyllilega hægt að njóta verksins án þess að lesa það spjaldanna á milli. Skemmtilegast er hreinlega að grípa niður í þessi fimm bindi af handahófi, skauta létt yfir og staldra við þegar augað fangar eitthvað bitastætt. Fyrir áhugafólk um íslenska alþýðusögu er þetta safn frábær brunnur til að gægjast ofan í.