Fara í efni
Amtsbókasafnið

Harðindi – Kuldinn og eymdin nísta inn að beini

AF BÓKUM – 87

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir_ _ _

Ég hef sérstakt dálæti á dystópíum - framtíðarsögum þar sem samfélagið er farið til ansdskotans. Mér finnst því einstaklega skemmtilegt þegar íslenskar dystópíur eru gefnar út, ein slík er bókin Harðindi eftir Vilhjálm Pétursson sem kom út í vor.

Í Harðindum blasir við nöturlegt Ísland, siðmenningin eins og við þekkjum hana hefur liðið undir lok og fólk gerir hvað sem er til þess að lifa af. Aðalpersónan, Steinn, hefur orðið sér úti um hest og flýr höfuðborgarsvæðið í leit að betra lífi á landsbyggðinni. Ferðalagið er ekki hættulaust, ræningjar reika um landið og Steinn veit ekki hverjum hann getur treyst og hverjir myndu stinga hann í bakið við fyrsta tækifæri. Þá vaknar líka upp sú spurning hvort aðrir geti treyst Steini?

Samhliða því sem við fylgjum ferðum Steins og kynnum hans af öðrum eftirlifendum fáum við innsýn í tímann um það leyti sem allt fór úr skorðum - þegar Steinn var vinnandi fjölskyldufaðir og eftirsjána sem nagar hann.

Bókin er stutt og auðlesin. Stíllinn er hrár og lesandinn finnur kuldann og eymdina nísta inn að beini. Ef þú varst hrifin af Eylandi eftir Sigríði Hagalín eða Veginum (e. The Road) eftir Cormac McCarthy þá ættirðu hiklaust að lesa Harðindi eftir Vilhjálm Pétursson.