Fara í efni
Amtsbókasafnið

Eyland – Dystópía í íslenskum samtíma

AF BÓKUM – 29

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Uppátækið vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir_ _ _

Sigríður Hagalín Björnsdóttir er einn af mínum uppáhalds rithöfundum. Hún er gríðarlega fjölhæf sem sést best í því hve gjörólíkar bækurnar hennar eru. Fyrir mér eru þetta allt fimm stjörnu bækur en fyrsta skáldsagan hennar, Eyland, á sérstakan sess hjá mér.

Eyland er dystópía sem gerist í íslenskum samtíma. Einn daginn missir Ísland allt samband við umheiminn. Síma- og netsamband út fyrir landssteinana rofnar. Engin flug eða skip koma til landsins. Landið er algjörlega einangrað og enginn veit hvers vegna – því ekkert af þeim skipum og flugvélum sem fara út fyrir lögsöguna snúa aftur.

Stjórnvöld lýsa yfir tímabundnu neyðarástandi en dagar verða að vikum og fólk þarf að aðlaga sig að þessu nýja ástandi. Fljótt verður ljóst að matvælaframleiðsla landsins stendur ekki undir íbúafjölda og í kjölfarið vakna upp ýmsar spurningar – hverjir eiga skilið að lifa og hverjir eiga að svelta? Hverjir eru það sem eiga auðlindir landsins? Eyland er áleitin saga um fólk sem grípur til örþrifaráða erfiðum aðstæðum. Saga um rasisma og kvenfyrirlitningu. Saga sem vekur óneitanlega upp spurningarnar hvað myndi ég gera í svona aðstæðum? Hvernig manneskja er ég?