Fara í efni
Umræðan

Þristavinir á léttum kosninganótum

Kosið verður til sveitarstjórna hér á landi um næstu helgi eins og alþjóð er án efa kunnugt, þar á meðal til bæjarstjórnar Akureyrar. Kosningabarátta getur verið hörð og jafnvel óvægin en sú er þó sjaldnast raunin í höfuðstað Norðurlands og jafnvel þótt sé stutt til kosninga gefst sem betur fer tími til að bregða á leik; slá á létta strengi. Það gerðu til dæmis í gær „þristar“ allra þeirra átta framboða sem standa kjósendum á Akureyri til boða á kjördag.
 
Meðal margra glæsilegra gripa á Flugsafninu er Þristurinn, sem svo er kallaður, Douglas DC3 flugvélin Páll Sveinsson. Vélin kom ný til landsins 1943 á vegum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli en Flugfélag Íslands keypti vélina þremur árum síðar. Fékk hún þá nafnið Gljáfaxi og var í notkun hjá Flugfélaginu allt til 1972 að félagið gaf Landgræðslu ríkisins Gljáfaxa til landgræðslustarfa. Vélin fékk þá nafnið Páll Sveinsson í höfuðið á fyrrverandi landgræðslustjóra.
 
Allt um það; áttmenningarnir sem eru í þriðja sæti framboðanna til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri um næstu helgi hittust á Flugsafninu í gær – um klukkan þrjú auðvitað – skoðuðu vélina, og fengu sér Þrist! Áhugamenn um varðveislu Páls Sveinssonar stofnuðu Þristavinafélagið árið 2005, ekki veit sá sem þetta skrifar hvort einhver „framboðsþristanna“ er í því góða félagi en hugsanlega varð til einhvers konar pólitískt Þristafélag eða Þristabandalag í gær. Það kemur ef til vill í ljós síðar ...
 
„Þristarnir“ á myndinni eru, frá vinstri: Sverre Jakobsson Framsókn, Egill Einarsson Miðflokki, Arna Rut Gunnarsdóttir Sjálfstæðisflokki, Helgi Steinar Halldórsson Akureyrarlista, Ásrún Ýr Gestsdóttir Vinstri grænum, Þóroddur Ingvarsson Viðreisn, Sigrún Steinarsdóttir Samfylkingu og Preben Pétursson L-lista.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00