Fara í efni
Umræðan

Þorlákur hættir sem þjálfari Þórs

Þorlákur Árnason hefur þjálfað Þórsliðið síðan haustið 2021. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þorlákur Árnason er hættur sem þjálfari karlaliðs Þórs í knattspyrnu. Þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins í morgun.

Þorlákur hefur þjálfað liðið frá haustinu 2021 og undir hans stjórn hafnaði liðið í 7. sæti Lengjudeildarinnar bæði tímabilin.

„Við í stjórn knattspyrnudeildar Þórs viljum fyrst og fremst þakka Láka kærlega fyrir sitt framlag til félagsins síðastliðin tvö ár. Ég gladdist verulega yfir ráðningu hans á sínum tíma þar sem hann hafði víða þekkingu til að miðla til félagsins okkar ásamt því að vera reynslumikill leiðtogi,“ segir Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs á thorsport.is.

Á þessum tveimur árum hefur mörgum ungum leikmönnum verið gefið tækifæri og þeir náð að þróast í að verða lykilmenn í liðinu. Það eru spennandi tímar framundan í Þorpinu og áhugavert verkefni sem bíður eftirmanns Láka að koma okkar liði í efstu deild,“ segir Sveinn Elías ennfremur.

Stækkun og endurbætur á félagsaðstöðu í Víðilundi

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
08. maí 2025 | kl. 13:45

Líflínan

Ingibjörg Isaksen skrifar
07. maí 2025 | kl. 08:00

Samstaða, kjarkur og þor

Björn Snæbjörnsson skrifar
05. maí 2025 | kl. 15:00

Um nesti, fótbolta og fótbolta kvenna

Þór Karls skrifar
30. apríl 2025 | kl. 06:00

Afgangur og þrír þræðir jarðtengingar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
15. apríl 2025 | kl. 16:00

Bjánarnir úti á landi

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar
15. apríl 2025 | kl. 12:53