Þór/KA tapaði fyrir meisturum Blika
Þór/KA laut í lægra haldi fyrir Íslandsmeisturum Breiðabliks í Bestu deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Blikarnir sigruðu 2:0 á heimavelli sínum í Kópavogi og eru jafnir FH-ingum í efsta sæti með 30 stig að loknum 13 leikjum. FH gerði 2:2 jafntefli við ÍBV í Eyjum í gær. Þór/KA er í áttunda sæti af 10 liðum með 12 stig, en í fallsætunum tveimur eru Víkingur með 11 stig og Valur með 10.
Byrjun leiksins í Kópavogi var eins vond fyrir Þór/KA og hægt var að hugsa sér. Breiðablik skoraði þegar aðeins tvær mínútur voru búnar; Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir komst upp að endamörkum hægra megin og náði að senda boltann inn á markteiginn þar sem Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skaust fram fyrir varnarmann og sneiddi boltann í netið. Afleit byrjun en þegar Stelpurnar okkar í Þór/KA virtust vera að hressast fékk Breiðablik dæmda vítaspyrnu. Áhöld voru um hvort brotið, sem dæmt var á, var innan eða utan vítateigs og einhverjum kann að þykja sem réttlætinu hafi verið fullnægt þegar Agla María Albertsdóttir skaut framhjá markinu af vítapunktinum.

Margrét Árnadóttir var óheppin að jafna ekki úr vítaspyrnu á lokaandartökum fyrri hálfleiks. Skot hennar fór í stöng. Mynd: Ármann Hinrik
Þór/KA fékk gullið tækifæri til að jafna leikinn í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Eftir hornspyrnu Hildar Önnu Birgisdóttur fór boltinn í hönd eins Blikans og dómarinn var viss í sinni sök. Margrét Árnadóttir steig fram, skot hennar var gott en boltinn small því miður í stönginni.
Ekki voru nema tæpar 10 mín. liðnar af seinni hálfleik þegar Blikarnir bættu við marki og aftur var Ólöf Sigríður að verki. Hún náði boltanum nálægt miðjuhringnum, tók á rás í átt að marki gestanna, komst óáreitt inn í vítateig og skoraði með góðu skoti. Þar með var verkefnið orðið afar erfitt fyrir leikmenn Þórs/KA en stelpurnar lögðu ekki árar í bát, reyndu hvað þær gátu og hefðu átt að skora amk eitt mark. En heppnin var ekki með liðinu og því fór sem fór.
Næsti leikur Þórs/KA er á heimavelli eftir rúma viku; Fram kemur í heimsókn á VÍS-völl Þórs föstudaginn 7. ágúst kl. 18:00.
Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB
Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu
Svæðisborgin Akureyri
Evrópusambandið, meira en tollabandalag