Fara í efni
Umræðan

Rúmlega 80% bíla eru á nagladekkjum

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Mun fleiri Akureyringar hafa ekið um á negldum dekkjum í vetur en áður, að því er kemur fram á vef sveitarfélagsins í dag. Hlutfall bíla á nagladekkjum er komið yfir 80% en var um 60% á árunum 2005 til 2014.

Tilkynningin er svohljóðandi:

Í apríl 2025 var settur upp búnaður til að telja fjölda ökutækja og reikna hlutfall þeirra sem eru á nagladekkjum. Fram að því hafði hlutfallið verið áætlað með sjón- og hljóðmati.

Mælingar sýna að á árunum 2005–2014 voru um 60% bíla á nagladekkjum yfir vetrartímann, en í dag er hlutfallið komið yfir 80%. Jákvætt er þó að ökumenn taka nagladekk undan fyrr á vorin en áður.

Samkvæmt reglum er óheimilt að nota nagladekk á tímabilinu 15. apríl til 31. október, nema brýn nauðsyn sé fyrir hendi vegna hálku eða vetraraðstæðna.

Nagladekk auka svifryk, valda meiri hávaða og slíta malbiki hraðar en önnur dekk, sem leiðir til aukins viðhaldskostnaðar.

Teljarinn er staðsettur við gangbraut yfir Hlíðarbraut, milli Hlíðarfjallsvegar og Merkigils. Myndavélar nema þegar ökutæki nálgast og virkja hljóðgreiningu til að meta hvort nagladekk séu notuð. Við greininguna eru engin persónugreinanleg gögn vistuð.

Akureyrarbær hvetur ökumenn til að velja nagladekk aðeins þegar aðstæður krefjast þess.

Í framhaldinu er vert að nefna að svifryk er oft mun meira á Akureyri en annars staðar á landinu skv. mælum Umhverfis- og orkustofnunar.

Hér er hægt að fylgjast með ástandinu á vef stofnunarinnar: Loftgæði

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45