Fara í efni
Umræðan

Keiludeild Þórs: Lengi getur vont versnað

Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi þar sem keilarar úr Þór hafa æft og keppt undanfarin ár. Myndin er af vef Akraneskaupstaðar.

Óvissa er um fyrstu heimaleiki Þórsliðanna í 1. og 3. deild Íslandsmótsins í keilu eftir að Íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi var lokað í liðinni viku vegna viðhalds og endurbóta. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs.

Versta aðstaða á landinu?

„Keiludeild Þórs og keppendur á hennar vegum eru mögulega sá íþróttahópur sem býr við verstu aðstöðu allra íþróttaliða á landinu. Keilusalnum á Akureyri var lokað árið 2017 og keilufólk innan Þórs hefur því ekki getað stundað íþróttina á heimaslóðum í sex ár,“ segir á vef félagsins.

„Þau allra hörðustu létu það ekki stöðva sig heldur leituðu til Skagamanna, en næsti keilusalur við Akureyri er á Akranesi. Þar tóku heimamenn keilufólki frá Þór opnum örmum og hafa Þórsarar farið reglulega á Skagann til æfinga og fengið að spila sína heimaleiki undanfarin ár.“

Þór teflir fram tveimur karlaliðum í Íslandsmótinu í liðakeppni, einu í 1. deild og einu í 3. deild. Þór á nefnilega lið í efstu deild í keilu þrátt fyrir þennan skort á aðstöðu, eina karlalið Þórs í efstu deild karla í liðaíþrótt.

  • Þór (1. deild) - Björgvin Helgi Valdimarsson, Ólafur Þór Hjaltalín, Birkir Örn Erlingsson, Steindór Máni Björnsson og Rúnar Ingi Grétarsson.
  • Þór-Víkingur (3. deild) - Höskuldur Stefánsson, Njáll Harðarson, Þorgeir Jónsson og Guðmundur Konráðsson. 

Áfall á Akranesi

Hafi staðan ekki verið nógu slæm þá versnaði hún til muna í liðinni viku þegar Akraneskaupstaður tilkynnti um lokun íþróttahússins við Vesturgötu vegna ófullnægjandi loftgæða. Það þýðir að Þórsarar hafa misst heimavöllinn sinn og þurfa mögulega að leita annað til að spila heimaleiki sína í 1. deild karla.

Að sögn Björgvins Helga Valdimarssonar, formanns keiludeildarinnar, er enn sem komið er óvissa um heimaleiki Þórsliðanna vegna þessarar lokunar á Skaganum.

Nánar hér á heimasíðu Þórs

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu

Clara Ganslandt skrifar
09. maí 2025 | kl. 16:30

Stækkun og endurbætur á félagsaðstöðu í Víðilundi

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
08. maí 2025 | kl. 13:45

Líflínan

Ingibjörg Isaksen skrifar
07. maí 2025 | kl. 08:00

Samstaða, kjarkur og þor

Björn Snæbjörnsson skrifar
05. maí 2025 | kl. 15:00

Um nesti, fótbolta og fótbolta kvenna

Þór Karls skrifar
30. apríl 2025 | kl. 06:00

Afgangur og þrír þræðir jarðtengingar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
15. apríl 2025 | kl. 16:00