Fara í efni
Umræðan

Glaðir göngugarpar í skóginum – MYNDIR

Keppendur í Byl - 24 km göngunni - leggja af stað í gær. Lengst til vinstri er Gísli Einar Árnason, sem varð í öðru sæti, og Stefán Þór Birkisson, sem varð fjórði, er fyrir miðri mynd númer 533. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Skíðaganga fór í fyrsta skipti fram í gær í nafni Súlur Vertical, í fallegu veðri í Kjarnaskógi. Frá og með þeirri stundu gengst félagsskapurinn sá arna ekki einungis fyrir samnefndu, mjög vinsælu fjallahlaupi ár hvert. Skíðaganga er orðinn hluti af vörumerkinu og keppni í malarhjólreiðum bætist við í sumar.

Vel viðraði til skíðagöngu í dásamlegri útivistarparadís Akureyringa þegar Hermann Sigtryggsson veifaði flaggi sínu til merkis um að gengið skyldi af stað. Göngukeppni kennd við þann gamalkunna íþróttafrömuð hefur verið haldin í fjöldamörg ár en frá og með gærdeginum verður Hermannsgangan þreytt undir merkjum Súlur Vertical. 

Þrjár vegalengdir stóðu keppendum til boða, 24 kílómetrar, 12 og 4 km.

64 tóku þátt í 24 km göngunni sem kallast Bylur, 35 karlar og 29 konur. Einar Árni Gíslason sigraði í karlaflokki á 1 klukkustund og 21 mínútu, var fimm mínútum á undan næsta manni í marki, föður sínum, Gísla Einari Árnasyni. Í kvennaflokki bar Edda Vésteinsdóttir sigur úr býtum; gekk vegalengdina á 1 klukkustund á 49 mínútum og önnur varð Magnea Guðbjörnsdóttir, fimm mín. á eftir Eddu.

47 spreyttu sig í 12 km göngunni – Mjöll – 28 konur og 19 karlar. Róbert Bragi Kárason og Guðrún Baldvinsdóttir sigruðu, Atli Sveinbjörnsson og Hilda Steinunn Egilsdóttir urðu í öðru sæti.

31 keppandi tók þátt í 4 km göngu – Fönn. Viktoría Rós Guseva var fljótust allra í mark á 15 mín. og 23 sek. en fyrstu í karlaflokki varð Arnar Gauti Gíslason á 17 mín. Gaman er að geta þess að Arnar Gauti er litli bróðir Einars Árna sem sigraði í lengstu göngunni, Byl.

Úrslit mótsins

www.sulurvertical.is

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00