Fara í efni
Umræðan

Fjölmennasta 100 km hlaup á Íslandi

Bæjarfulltrúarnir Elma Eysteinsdóttir og Andri Teitsson tóku þátt í 100 km Súlur Vertical hlaupinu í fyrra og léku við hvern sinn fingur. Í ár ætla 49 keppendur að spreyta sig á þessari vegalengd og þetta verður því fjölmennasta 100 km hlaup landsins. Mynd: Ármann Hinrik

Um verslunarmannahelgina verður fjallahlaupið Súlur Vertical haldið í 10. skiptið. Viðburðurinn hefur vaxið mikið að umfangi frá fyrsta hlaupinu og metskráning er í hlaupið í ár. Enn er hægt að slást í hópinn og skrá sig til leiks en skráningarfrestur rennur út annað kvöld, föstudagskvöldið 25. júlí. Reyndar er búið að loka fyrir skráningu í 100 km hlaupið en engu að síður verður þetta fjölmennasta 100 km hlaup sem haldið hefur verið á Íslandi.

Á afmælisárinu var ákveðið að útvíkka Súlur Vertical viðburðinn og gera hann að þríleik. Auk fjallahlaupsins var keppt í skíðagöngu í vetur og í ágúst verður keppt í malarhjólreiðum. Þau sem ljúka keppni í öllum þremur greinunum fá sérstaka viðurkenningu.

Fyrsta hlaupið fór fram árið 2016 að frumkvæði Þorbergs Inga Jónssonar. Þá kepptu 15 keppendur í einni vegalengd. Í ár er keppt í fimm mismunandi vegalengdum, að krakkahlaupinu meðtöldu, og þó að skráningarfrestur sé ekki liðinn eru þegar vel yfir 500 þátttakendur skráðir til leiks, sem er metþátttaka. Í fyrra tóku um 480 manns þátt, sem þá var met.

Í ár verður í þriðja sinn boðið upp á 100 km langt fjallahlaup og 49 þátttakendur eru skráðir í það - sem gerir það að fjölmennasta 100 km hlaupi landsins. Að venju taka flestir þátt í 18 km vegalengdinni, skráningar þar eru komnar yfir 300. Allir keppendur byrja sitt hlaup í Kjarnaskógi, nema 100 km hlauparar sem leggja af stað frá Goðafossi, og allir ljúka sínu hlaupi í miðbæ Akureyrar þar sem myndast jafnan gríðarleg stemning við marksvæðið.

Skráning í hlaupið fer fram hér og er opin til miðnættis á annað kvöld. Skráning í krakkahlaupið, sem fram fer í Kjarnaskógi föstudaginn 1. ágúst, er þó opin til hádegis þann dag.

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00