Lóan er komin og sumarkvíðinn líka
14. apríl 2026 | kl. 21:00
AF BÓKUM – 73
Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir_ _ _
Bækurnar eru fallegar og með passlega mikið af texta og myndum til að lesa þær fyrir 5-10 ára börn. Bækurnar eru fullkomin leið til að kynna sögurnar um Múmíndal fyrir ungum börnum sem eru kannski ekki tilbúin í upprunalegu bækurnar. Ég hef ekki bara tekið þær á bókasafninu heldur hef ég nú safnað þeim þegar bókamarkaðurinn kemur norður og á þær heima. Fínar fyrir safnara. Í framtíðinni ætla ég að vera amman með múmínbollasafnið og múmínbækurnar til að lesa fyrir ömmubörnin.
Bækurnar eru að finna í barnadeild Amtsbókasafnsins í „grænu doppunum“ fyrir utan Jól í Múmíndal sem er uppi í Jóladeildinni í „Gamalt og gott.“
