Fara í efni
Umræðan

Að eiga í faðmlagi við möru

Afhverju ættu hjúkrunarfræðingar að segja JÁ við samningnum?

Í vor eru komin 20 ár síðan við útskrifuðumst sem hjúkrunarfræðingar frá Háskólanum á Akureyri. Þegar við útskrifuðumst vorum við fullar bjartsýni, gleði og ánægju yfir því að hafa lokið þessum áfanga og hlökkuðum innilega til að takast á við starfið okkar sem við höfðum menntað okkur til.

Starfið er okkur ávallt hugleikið og höfum við bætt við okkur menntun jafnt og þétt og unnið á ýmsum deildum bæði hér heima og erlendis. Allan þann tíma sem við höfum starfað sem hjúkrunarfræðingar þá hafa launamál verið ofarlega á baugi og hangið yfir höfðum okkar eins og mara.

Heiða Hauksdóttir, til vinstri, og Sólveig Tryggvadóttir.

Lög, verkfallsbann og gerðardómur

Mara er, samkvæmt gamalli þjóðtrú, „óvættur sem ræðst á sofandi fólk“. Það að fá martröð er að vera troðin af möru. Oftast var talað um mörur sem kvenkyns verur en þó voru þær mörur sem ásóttu konur gjarnan taldar karlkyns. Á þessum 20 árum hafa verið sett á okkur lög, verkfallsbann og gerðardómur.

Það hefur engu máli skipt hvort það sé góðæri, kreppa, verðbólga eða jafnvel heimsfaraldur. Allt kemur fyrir ekki, það er aldrei nægilegt svigrúm til að greiða hjúkrunarfræðingum sambærileg laun og aðrar háskólastéttir.

Það er afar slítandi að þurfa alltaf að berjast fyrir sínum kjörum. Að kreista eitthvað fram en um leið borga lánasjóði ríkisins mikið af launahækkuninni til baka. Nú stendur fyrir dyrum að greiða atkvæði um enn einn kjarasamninginn sem lagður er fyrir hjúkrunarfræðinga og hefur hann verið kynntur hjúkrunarfræðingum. Hjúkrunarfræðingar eru misvel stemmdir fyrir þessum nýjasta samningi og eru margir hverjir bugaðir af þeirri möru sem hangið hefur yfir okkur í áraraðir. Við teljum þó að best sé í stöðunni að samþykkja þennan samning þar sem hann er bara til eins árs og margt gott í honum og ýmsar lagfæringar á hlutum sem kallað hefur verið eftir að lagfæra.

Loksins tækifæri

Við viljum styðja við formanninn okkar sem hefur staðið í brúnni og samninganefnd Fíh. Það er ekki létt verk að vinna að reyna að fá í gegn launahækkun hjúkrunarfræðinga þar sem afstaða ríkisins er „the computer says no“ og reikniformúlan andsetin af áðurnefndri „möru“ sem vill ekki menntaða kvennastétt upp á dekk.

Með þessum samningi gefast loks tækifæri til að aflétta þessari möru. Í þessum skammtímasamningi eru opnaðar dyr að því að geta loksins endurskoðað laun hjúkrunarfræðinga til frambúðar. Af þeim afarkostum sem eru uppi í stöðunni teljum við best að hjúkrunarfræðingar fái að semja sjálfir um sín kaup og kjör og aflétti þar með áratuga álögum mörunnar sem hefur ekki gert neitt annað en að ala á sundrung og óánægju meðal hjúkrunarfræðinga.

Maran hefur rænt hjúkrunarfræðinga starfsgleðinni og lagst yfir eins og þokuslæða sem illa gengur að losa sig við. Því þegar þokunni léttir og álögunum aflétt, þá verður sko sannarlega gaman að vera hjúkrunarfræðingur.

Hjúkrunarfræðingar eru ein af mörgum mikilvægum stéttum í samfélagi okkar og það hlýtur að vera markmiðið að koma fram með tillögur sem leitt geta til þess að hjúkrunarfræðingar haldist betur í starfi og að þeir sem farið hafa í önnur störf leiti til baka í heilbrigðisþjónustuna. Það er samfélaginu öllu til heilla.

Heiða Hauksdóttir og Sólveig Tryggvadóttir eru hjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15

Ómenning í fjallinu

Adolf Ingi Erlingsson skrifar
12. apríl 2024 | kl. 11:25

Elínborg – meðmæli með biskupsefni

Björg Ágústsdóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 09:15

Í þágu ME-sjúklinga

Freyja Magnúsdóttir og Pétur Þór Jónasson skrifa
10. apríl 2024 | kl. 05:00