Fara í efni
Skip dagsins

Úrbætur á réttri leið – dagsektum hætt

Skjáskot af map.is sem sýnir samansafnið að Setbergi á Svalbarðsströnd 2025. Lausleg talning bendir til að þarna séu um eða yfir 160 ökutæki.

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra (HNE) hætti álagningu dagsekta á Auto ehf. á Svalbarðsströnd frá og með 11. september, en synjaði um niðurfellingu áfallinna og óinnheimtra dagsekta að sinni. Dagsektir að upphæð 50.000 krónur hafa verið lagðar á í 683 daga, eða frá 28. október 2024 (alls 34 milljónir króna en akureyri.net er ekki kunnugt um hve mikið er ógreitt).

Fram hefur komið við skoðun og í ályktunum nefndarinnar á undanförnum árum að innan lóðarinnar hafi verið fjöldi ökutækja, hjólbarða, véla og vélahluta í afar misjöfnu ástandi. Þá megi þar einnig finna spilliefni á borð við rafgeyma og víða innan lóðarinnar sé olíumengun í jarðvegi. Nú virðist hins vegar þróunin vera í þá átt sem nefndin og starfsfólk heilbrigðiseftirlits hafa þrýst á um í fjölda ára. Þær úrbætur sem nú er unnið að eiga sér langan aðdraganda með ályktunum og áskorunum nefndarinnar, ásamt álagningu dagsekta.

Unnið að úrbótum samkvæmt verkáætlun

Í apríl óskaði Auto ehf. eftir samtali og samstarfi við HNE um gerð aðgerðaáætlunar um tiltekt á lóð fyrirtækisins að Setbergi á Svalbarðsströnd. Fulltrúar HNE funduðu á vettvangi með stjórnarformanni Auto ehf. þann 8. maí. Þar kynnti hann áform fyrirtækisins um úrbætur á svæðinu, sem miðuðu að því að fjarlægja lausamuni sem eru sýnilegir frá þjóðvegi og tryggja að spilliefnum verði komið í viðeigandi förgun eigi síðar en 15. júní. Heilbrigðisnefndin lagði á fundi í júní áherslu á að áform fyrirtækisins gengju eftir innan tilgreinds frests og áréttaði þá að áfram yrðu lagðar á dagsektir þar til fullnægjandi úrbætur hafi verið gerðar og staðfestar af hálfu HNE.

Auto ehf. óskaði þann 7. september eftir því að álagðar dagsektir verði felldar niður og frekari dagsektir ekki lagðar á fyrirtækið vegna stöðu mála á athafnasvæði þess. Vísað var til þess að unnið hafi verið að úrbótum á athafnasvæðinu í samræmi við þá verkáætlun sem kynnt var nefndinni á fundi hennar 10. júní.

Fullnægjandi staðfesting liggur ekki fyrir

Heilbrigðisnefndin samþykkti að hætta álagningu dagsekta frá og með 11. september, eins og áður sagði, „þar sem verulegur árangur hefur náðst við framkvæmd þeirra úrbóta sem krafist var. Nefndin telur hins vegar að ekki liggi enn fyrir fullnægjandi staðfesting á því að öllum úrbótum sé lokið og frestar því ákvörðun um niðurfellingu áfallinna og óinnheimtra dagsekta,“ segir meðal annars í bókun hennar.

Starfsmenn heilbrigðiseftirlits munu áfram fylgjast með framvindu málsins og leggja greinargerð fyrir næsta fund nefndarinnar um stöðu úrbóta, ásamt tillögu að endanlegri afgreiðslu málsins.


Myndirnar hér að neðan eru skjáskot af map.is sem sýna samansafnið að Setbergi á Svalbarðsströnd undanfarna tæpa þrjá áratugi. Á loftmynd frá 1998 (neðsta myndin) má sjá að þá var staðan mun betri, bílar og tæki þá aðallega austanvert við löngu skemmuna á myndinni og eitthvað við suðurendann. Sjö árum síðar hafði fjölgað verulega á lóðinni, eins og sjá má.