Lúpína og hettumávur ágeng í Naustaflóa
Bregðast þarf strax við til að hindra framgang lúpínu í Naustaflóa. Þetta kemur fram í skýrslu um fuglalíf við Hundatjörn í Naustaflóa, mýrarsvæði í Naustaborgum, sem framkvæmdar voru í lok maí og byrjun júní.
Fuglatalning, sú ellefta frá árinu 2008, var framkvæmd og skýrsla unnin um fuglalíf við Hundatjörn í Naustaflóa að beiðni umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar. Skýrslan var lögð fyrir umhverfis- og mannvirkjaráð í lok september, en fuglatalningin á svæðinu er sú ellefta frá árinu 2008.
Brýning um mikilvægi þess að hamla útbreiðslu framandi gróðurs á svæðinu kemur fram í lokaorðum skýrslunnar, en þar segir: „Fuglalífið í Naustaflóa er í góðu jafnvægi, þó alltaf séu örlitlar breytingar á milli ára. Eins og áður er varp anda og vaðfugla þéttast í nyrðri hluta flóans umhverfis votlendið ... Trjágróður er í miklum vexti, bæði meðfram stígnum sunnan Hundatjarnar og nyrst. Vel þarf að fylgjast með útbreiðslu lúpínu á svæðinu og bregðast strax við til að hindra framgang hennar. Naustaflói er gott dæmi um endurheimt votlendis og enn sem fyrr er mjög áhugavert að fylgst verði reglulega með fuglalífinu á svæðinu.“
Hvetja til átaks innan svæðisins
Kristín Helga Schiöth S-lista og Herdís Júlía Júlíusdóttir V-lista bókuðu um málið á fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs þar sem þær benda á að sams konar brýning hafi komið fram í skýrslu sem unnin var af Náttúrufræðistofnun árið 2025, það er að hamla útbreiðslu framandi gróðurs á svæðinu. Í skýrslunni sem nú er lögð fram sé ítrekað að bregðast þurfi stras við til að hindra framgang lúpínunnar sérstaklega innan svæðisins. „Hvatt er til þess að umhverfis- og mannvirkjasvið fylgi þeim leiðbeiningum sem lagðar eru fram í framantöldum skýrslum og geri átak innan svæðisins í upprætingu framandi, ágengra plöntutegunda sem hafa neikvæð áhrif á varpsvæði,“ segir í lokun bókunarinnar.
Veruleg fjölgun hettumáva
Alls fundust 14 tegundir varpfugla á svæðinu, tveimur tegundum fleira en í síðustu talningu vorið 2024. Á svæðinu sáust 242 varppör, sem er rúmlega tvöföldun frá talningunni 2024, úr 119 í 242 pör. Fram kemur í skýrslunni að fjölgun varppara milli talninga 2024 og 2026 um 123 skýrist eingöngu af verulegri fjölgun hettumáva. „Hvorki álft né rauðhöfðaönd urpu að þessu sinni en fjöldi anda að öðru leyti stendur nánast í stað frá síðustu talningu. Vaðfuglum fjölgaði milli talninga úr 18 pörum í 20. Spörfuglum fjölgaði úr fjórum pörum í átta. Þúfutittlingur fannst aftur verpandi og glókollur er nýr varpfugl á svæðinu,“ segir í skýrslunni.

Glókollur er nýr varpfugl við Hundatjörn í Naustaflóa. Mynd úr skýrslunni. Ljósmyndari: Eyþór Ingi Jónsson.
Á myndunum hér að neðan, sem fengnar eru úr skýrslunni, má sjá dreifingu varpfugla í Naustaflóa við talninguna í vor.


Skýrsluna unnu Sverrir Thorstensen, Brynja Helgu Baldursdóttir, Eyþór Ingi Jónsson, Katrín Hermannsdóttir, Ketill Þór Thorstensen og Kristján Helgi Jóhannsson.