Fara í efni
Pistlar

Engin heilsugæslustöð á tjaldsvæðisreitnum

Tjaldsvæðisreiturinn. Norðvesturhornið þar sem hugmyndin var að byggja heilsugæslustöð sést ekki á þessari mynd. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur gert breytingar á tillögu um deiliskipulag fyrir tjaldsvæðisreitinn og er nú ekki lengur gert ráð fyrir byggingu heilsugæslustöðvar við gatnamót Þingvallastrætis og Byggðavegar.

Drög að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðisreitinn voru kynnt á tveimur fundum í nóvember í fyrra, fyrst á fundi með fagaðilum og síðan með íbúum og öðrum. Fljótlega eftir þessa fundi var málið sett í bið vegna óvissu um byggingu heilsugæslustöðvar á svæðinu. 

Tillaga að breyttu deiliskipulagi var tekin fyrir í skipulagsráði í gær með ýmsum breytingum sem gerðar hafa verið til að koma til móts við athugasemdir og ábendingar sem komu fram á kynningarfundunum. Í breyttri tillögu er nú gert ráð fyrir blandaðri landnotkun þar sem áður var hugmyndin að ný heilsugæslustöð yrði byggð. 

Tillöguna eins og hún var lögð fram í nóvember ásamt umfjöllun um hana má sjá í frétt frá 7. nóvember 2023.

Íbúðir fyrir 60 ára og eldri?
 
Á fundi skipulagsráðs í gær var tekið fyrir erindi Félags eldri borgara á Akureyri  sem óskað hefur eftir því að fá úthlutað svæði á tjaldsvæðisreitnum fyrir 50 íbúðir sem byggðar yrðu með þarfir 60 ára og eldri í huga.
 
„Skipulagsráð þakkar fyrir erindi Félags eldri borgara. Að mati ráðsins er ekki tímabært að úthluta ákveðnum svæðum þar sem skipulagið er enn í vinnslu. Aftur á móti er gert ráð fyrir að hluti íbúða innan deiliskipulagsins verði fyrir íbúa 60 ára og eldri og verður útfærsla málsins unnin í samráði við Félag eldri borgara,“ segir í fundargerð.

Drepfyndin óvissuferð hjá Leikfélagi Hörgdæla

Rakel Hinriksdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 11:00

Flækjum ekki hlutina

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
10. mars 2026 | kl. 06:00

Frostaveturinn 1918

Jóhann Árelíuz skrifar
08. mars 2026 | kl. 15:00

Börkur berst við kerfið

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
08. mars 2026 | kl. 13:30

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Málabraut, er það ekki bara eitthvað hobbí?

Orri Páll Ormarsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 06:00