Fara í efni
Pistlar

Brynja Dís sigraði í upplestrarkeppninni

Keppendur í Upphátt, upplestrarkeppni grunnskóla Akureyrar 2024. Fremst fyrir miðju er Brynja Dís Hafdal Axelsdóttir úr Lundarskóla sem varð í 1. sæti. Næst henni til vinstri stendur Sigurður Hólmgrímsson úr Brekkuskóla og í öftustu röð, fjórða frá vinstri, er Konný Björk Þórðardóttir úr Naustaskóla.

Brynja Dís Hafdal Axelsdóttir úr Lundarskóla hreppti 1. sætið í Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, sem var haldin fimmtudaginn 7. mars sl. Keppnin var haldin í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi og var þetta í 23. skiptið sem hún fer fram.

Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar í dag.

Nemendur í 7. bekk tóku þátt í keppninni en áður en lokahátíðin átti sér stað höfðu grunnskólar bæjarins haldið forkeppni þar sem tveir fulltrúar voru valdir til að keppa fyrir hönd hvers skóla. Í aðdraganda hátíðarinnar var einnig blásið til samkeppni meðal 7. bekkja um besta veggspjaldið. Falleg teikning eftir Ými Helga Teitsson, nemanda í 7. bekk Síðuskóla, sigraði og prýddi veggspjald Upphátt 2024, viðurkenningarskjöl og boðskort keppninnar.

„Nemendur og kennarar leggja talsverða vinnu í undirbúning keppninnar sem hefst árlega á degi íslenskra tungu, 16. nóvember. Sá hluti keppninnar er kallaður ræktunarhluti þar sem nemendur 7. bekkjar leggja sérstaka áherslu á upplestur, vandaðan framburð, framkomu og túlkun orða,“ segir á vef bæjarins.

Í ár áttu sjö skólar fulltrúa í keppninni og 13 hæfileikaríkir nemendur lásu hluta úr sögunni Hetja eftir Björk Jakobsdóttur og ljóð eftir Braga Valdimar Skúlason. Loks lásu þeir ljóð að eigin vali. Í dómnefnd sátu Eyrún Huld Haraldsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir og María Pálsdóttir.

Ómissandi þáttur þessarar hátíðlegu stundar er tónlistarflutningur nemenda í Tónlistarskólanum á Akureyri í umsjá Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur. Þá flutti Sandra María Jessen, íþróttakona Akureyrar 2023, ávarp til þátttakenda og gesta.

„Það má með sanni segja að allir lesarar hafi staðið sig með miklum sóma og því var hlutskipti dómnefndar ekki auðvelt,“ segir á vef bæjarins.

Verðlaunasæti Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri 2024, hrepptu:

  • Brynja Dís Hafdal Axelsdóttir, Lundarskóla, 1. sæti
  • Konný Björk Þórðardóttir, Naustaskóla, 2. sæti
  • Sigurður Hólmgrímsson, Brekkuskóla, 3. sæti

Styrktaraðilar keppninnar í ár voru; Sparisjóður Höfðhverfinga, Penninn Eymundsson, Blómabúð Akureyrar, Mjólkursamsalan og Myllan. „Þeim eru færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn sem og öllum upplesurum, kennurum, tónlistarflytjendum, dómurum og öðrum sem komu að undirbúningi og framkvæmd þessarar keppni,“ segir í tilkynningu á vef bæjarins.

Skíðaferðir

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
06. maí 2024 | kl. 11:30

Gangstétt varð gúmmíi að bráð

Orri Páll Ormarsson skrifar
03. maí 2024 | kl. 16:30

Tengsl sitkagrenis við verkalýðsfélög

Skapti Hallgrímsson skrifar
01. maí 2024 | kl. 10:10

Hús dagsins: Gamli Skóli; Eyrarlandsvegur 28

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
30. apríl 2024 | kl. 06:45

Kartöflur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
29. apríl 2024 | kl. 11:30

Um þróun stafafuru

Sigurður Arnarson skrifar
24. apríl 2024 | kl. 09:15