Yngstu fækkar en mikil fjölgun í elsta hópnum
Á meðan íbúum Akureyrarbæjar hefur fjölgað um 21% á undanförnum tveimur áratugum hefur íbúum í yngstu aldurshópunum fækkað, en fjölgað í þeim eldri, hlutfallslega langmest í hópi 68 ára og eldri. Íbúum í yngsta aldurshópnum, 0-5 ára, hefur fækkað um 10,1% og elstu íbúunum, 68 ára og eldri, fjölgað um 67,2%. Þetta er á meðal þess sem fram kom á kynningarfundum Akureyrarbæjar um skipulagsmál sem haldnir voru nýverið.
Frá 2005 til 2025 hefur fjölgun/fækkun íbúa Akureyrar í einstökum aldurshópum verið þessi:
- Íbúafjöldi samtals
2005: 16.568
2025: 20.050
Fjölgun: 21% - Aldurshópur 0-5 ára
2005: 1.499
2025: 1.347
Fækkun: 10,1% - Aldurshópur 6-15 ára
2005: 2.683
2025: 2.573
Fækkun: 4,1% - Aldurshópur 16-25 ára
2005: 2.376
2025: 2.793
Fjölgun: 17,6% - Aldurshópur 26-67 ára
2005: 8.309
2025: 10.493
Fjölgun: 26,3% - Aldurshópur 68 ára og eldri
2005: 1.701
2025: 2.844
Fjölgun: 67,2%
Gröfin hér að ofan sýna íbúaþróun og aldurssamsetningu undanfarinna tveggja áratuga á Akureyri. Skjáskot úr kynningu skipulagssviðs Akureyrarbæjar.
Reiknað með lóðum fyrir 260 íbúðir á ári
Húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar er endurskoðuð á hverju ári og er að hefjast vinna við endurskoðun hennar. Þar er sett fram áætlun um úthlutun lóða fyrir næstu tíu ár til að ná fram markmiðum um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á tímabilinu. Reiknað er með úthlutun lóða fyrir allt að 260 íbúðir á ári að meðaltali og er það töluvert umfram þörf samkvæmt áætlun, að því er fram kemur í gögnum frá kynningarfundunum sem bærinn hélt á dögunum.

Stærsta uppbyggingarsvæði á Akureyri um þessar mundir er Móahverfið. Mynd: Akureyrarbær.
Við mat á þörfinni er að sjálfsögðu stuðst við mannfjöldaspá og meðal annars aldurssamsetningu íbúanna. Í mannfjöldaspá Aðalskipulags Akureyrarbæjar 2018-2030 eru settar fram þrjár tölur, lágspá upp á 0,56%, miðspá upp á 1,15% í samræmi við meðaltal síðustu tíu ára, og háspá upp á 1,36%, í samræmi við meðaltal síðustu fimm ára. Miðað við þessar spár yrði íbúðaþörf á hverju ári að meðaltali 160 íbúðir samkvæmt lágspánni, 195 eftir miðspánni og 220 miðað við háspána.
