Fara í efni
Íþróttir

Völlurinn að Jaðri verður sá lengsti

17. brautin eftir lengingu - hvíti punkturinn neðst á myndinni er karlateigurinn.

Tvær brautir á Jaðarsvelli verða lengdar fyrir Íslandsmótið í golfi sem fer fram þar í sumar. Miðað er við „karlateigana“ – 17. brautin lengist um 44 metra og verður sem fyrr lengsta braut vallarins, og 3. brautin lengist um 28 metra.

3. brautin að Jaðri er nú 442 metrar en verður 470 metrar, 17. brautin er hins vegar 507 metra löng en verður 551 m.

Vinna við endurhönnun og uppbyggingu Jaðarsvallar hófst 2004. Lokið er við að endurgera allar flatir og alla teiga og er lenging brautanna liður í áframhaldandi þróun vallarins.

„Þetta hefur því lengi staðið til, högg kylfinga hafa lengst nokkuð á síðustu árum, meðal annars vegna breytinga á búnaði,“ segir Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar, við Akureyri.net. „Ekki skemmir fyrir að klára þetta fyrir Íslandsmótið í sumar,“ segir hann.

Eftir breytinguna nálgast Jaðarsvöllur það að verða 6.100 metra langur, og þar með lengsti völlur landsins. „Það var ekki markmiðið í sjálfu sér, við erum ekki að lengja völlinn lenginganna vegna. Við viljum fyrst og fremst að hver og ein hola verði sem best og skemmtilegust bæði fyrir keppendur og áhorfendur,“ segir Steindór. 

3. brautin að Jaðri fyrir breytingu. 

3. brautin eftir lengingu.

17. brautin eins og hún er nú.

17. brautin eftir breytingu.