Íslandsmót golfklúbba hefst í dag
Íslandsmót golfklúbba í 1. deild hefst í dag og stendur fram á laugardag. Lið frá Golfklúbbi Akureyrar eru meðal sveita sem etja kappi um Íslandsmeistaratitilinn, bæði í kvenna- og karlaflokki. Karlasveitirnar leika á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu en kvennasveitirnar spila á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Átta lið keppa í hvorri deild og er þeim skipt í 2 fjögurra liða riðla þar sem allir leika við alla. Tvö efstu liðin í hvorum riðli komast í undanúrslit og leika um sæti 1.-4. en tvö neðstu liðin leika um sæti 5.-8. Liðin sem hafna í sætum 7 og 8 falla síðan í 2. deild.
Í hverri viðureign í karlaflokki leika 7 keppendur hvers liðs hverju sinni en 6 keppendur hjá konunum. Keppt er í holukeppni, bæði í fjórmenningi (tveir spila saman gegn tveimur) og tvímenningi (einn spilar gegn einum).
Lið GA eru þannig skipuð að í kvennasveitinni eru þær Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Arna Rún Oddsdóttir, Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Kara Líf Antonsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Ragnheiður Svava Björnsdóttir. Karlasveitina skipa síðan Mikael Máni Sigurðsson, Óskar Páll Valsson, Patrik Róbertsson, Ragnar Orri Jónsson, Tumi Hrafn Kúld, Valur Snær Guðmundsson, Veigar Heiðarsson, Víðir Steinar Tómasson og Örvar Samúelsson.
Sveitir GA náðum mjög góðum árangri á Íslandsmótinu í fyrra, komust báðar í undanúrslit en urðu að sætta sig við 4. sætið að lokum.
Keppni hefst í bítið og leikar verða tvær umferðir í dag. Kvennasveitin mætir sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í 1. umferð og karlarnir leika gegn Golfklúbbi Mosfellsbæjar.