Vistvænt þorp í mótun ofan Akureyrar
Vistvæn byggðarhugmynd sem byggir á sjálfbærni, sameiginlegri landnýtingu og samfélagshugsun er í mótun í landi Hesjuvalla ofan Akureyrar.
Sala er hafin á hlutum í félaginu sem stendur að vistþorpinu. Það er félagið Björg í bú ehf sem stendur að verkefninu en það er í eigu Helgu Bjargar Jónasardóttur og fjölskyldu hennar, sem hefur á undanförnum árum markvisst unnið að því að byggja upp landið á Hesjuvöllum með framtíðarsýn um vistvænt þorp á staðnum. „Markmiðið er að þeir sem kaupa hlut í félaginu verði ekki eingöngu fjárfestar heldur þátttakendur í mótun samfélagsins. Þetta snýst sem sagt ekki um að kaupa sig inn og bíða eftir arði, heldur um að vera með í þróuninni,“ segir Helga Björg við akureyri.net.
Í stað hefðbundinnar lóðasölu er boðið upp á samvinnufélags fyrirkomulag. Félagið á landið og einhverja tugi lóða (fjöldinn fer eftir endanlegu deiliskipulagi) og hver fjárfestir kaupir hlut í félaginu (5%) og fær með því eina 1.000 m2 lóð. Alls verða 12 hlutir í boði og kostar hver hlutur 20 milljónir króna. Hluthafar ákveða svo sameiginlega framtíðarstefnu um þróun og nýtingu á svæðinu, og hvort hinar lóðirnar verði leigðar eða seldar, o.s.frv.

Umrætt svæði er fyrir ofan Akureyri en þar er gert ráð fyrir allt að 60 byggingarlóðum.
80 þúsund fermetrar undir vistþorp
Upphaflega var gert ráð fyrir um tveimur hekturum af frístundabyggð á jörð Hesjuvalla samkvæmt deiliskipulagi. Sú sýn hefur síðan þróast og svæðið stækkað í um átta hektara, eða um 80 þúsund fermetra. Landið er í um 200 m hæð, með góðu aðgengi að vegi, rafmagni og vatni. Svæðið hallar til austurs og er með fallegu útsýni yfir Akureyri og út Eyjafjörð. Í grófum dráttum er gert ráð fyrir allt að 60 byggingarlóðum þegar uppbyggingu lýkur, en það mun að sjálfsögðu fara eftir því hvernig hluthafahópurinn ákveður að skipuleggja svæðið. Svæðið mun í byrjun verða skilgreint sem frístundabyggð en vonir standa til þess að með skýrri áherslu á sjálfbærni og umhverfissjónarmið verði unnt að fá heimild til heilsársbyggðar til framtíðar.

Fyrirhugað vistþorp er í landi Hesjuvalla Mynd: Skapti Hallgrímsson
Sameiginleg verkfæri og gróðurhús
Ein af lykilhugmyndum verkefnisins er að draga úr óþarfa endurtekningu innviða og tækjabúnaðar með deilihagkerfishugsun að leiðarljósi.
Í stað þess að hver lóð standi alfarið einangruð er lögð áhersla á sameiginlega nýtingu rýma, tækja og aðstöðu. Helga Björg nefnir dæmi á borð við sameiginleg gróðurhús, verkfæri og sameiginleg rými sem nýtast gestum. Slíkt fyrirkomulag geti bæði dregið úr umhverfisáhrifum og styrkt samfélagið sem byggist upp á svæðinu. Hún bendir á að þessi nálgun sé algeng víða erlendis og að yngri kynslóðir sýni henni aukinn áhuga. Verkefnið er einmitt þróað í samstarfi við næstu kynslóðir innan fjölskyldunnar.
„Auðvitað væri það jákvætt fyrir sveitarfélagið að vera með vistvænt hverfi innan síns svæðis,“ segir Helga Björg og bætir við að slík hugsun verði sífellt mikilvægari þegar horft er til framtíðar. Þá verður einnig lögð áhersla á virka og ábyrga landnýtingu. Á jörðinni hefur þegar verið ræktaður útivistarskógur og möguleikar eru á frekari ræktun og sjálfbærum búskap. Helga nefnir að landið bjóði upp á tilraunir með mismunandi orkuöflun, svo sem vatnsafl, vindorku og sólarorku, auk mögulegrar tengingar við dýrahald og endurnýtingu eldri útihúsa.
Markmiðið er að þeir sem kaupa hlut í félaginu verði ekki eingöngu fjárfestar heldur þátttakendur í mótun samfélagsins. Þetta snýst sem sagt ekki um að kaupa sig inn og bíða eftir arði, heldur um að vera með í þróuninni.
Langtímahugsun fremur en skammtímaarður
Helga leggur áherslu á að verkefnið sé fyrst og fremst drifið áfram af hugsjón en sameiginlegur þráður í verkefninu er ábyrgð gagnvart landinu sjálfu. Áherslan sé á langtímahugsun, ekki skammtímaarð. „Mig langar að skila landinu frá mér í betra ástandi en ég tók við því. Það var drifkraftur að baki skógræktinni og þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin hér á Hesjuvöllum,“ segir Helga Björg og bendir áhugasömum sem vilja fjárfesta í framtíðarbúsetu í vistþorpi við Akureyri að setja sig í samband við hana.