Harma óvissu um framtíð starfsfólksins
Óvissa hefur ríkt meðal starfsfólks heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, þar á meðal hér á Norðurlandi eystra, vegna þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru á fyrirkomulagi eftirlits um áramótin. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra harmar að ekki skuli hafa tekist að eyða þeirri óvissu. Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar 11. september.
Þar sem verkefni Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra munu flytjast til ríkisins um áramótin og starfsemi eftirlitsins í núverandi mynd verður lögð niður hefur heilbrigðisnefndin samþykkt að ráðningarsamningum starfsmanna verði sagt upp fyrir lok september. Þá hefur húsaleigusamningum að Furuvöllum 1 á Akureyri og Hafnarstétt 3 á Húsavík verið sagt upp.
Sérstök áhersla á að skýra stöðu starfsfólks
Þrátt fyrir að legið hafi fyrir um nokkurt skeið að breyting á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirtlis sveitarfélaga taki gildi frá og með næstu áramótum ríkir enn óvissa um framtíð starfsfólks og starfa sem flytjast til opinberra stofnana.
„Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra harmar að enn hafi ekki tekist að eyða þeirri óvissu sem ríkir meðal starfsfólks heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga þrátt fyrir að við meðferð málsins á Alþingi hafi verið lögð sérstök áhersla á að staða starfsfólks yrði skýrð eins fljótt og unnt væri,“ segir meðal annars í bókun heilbrigðisnefndarinnar um málið. Í gögnum sem Alþingi voru kynnt hafi komið fram að stefnt væri að því að ráðningarbréf yrðu send þeim starfsmönnum sem byðist starf hjá ríkisstofnunum, áður en til uppsagna kæmi.
Könnun hefur verið gerð á áhuga starfsfólks á störfum hjá Umhverfis- og orkustofnun og Stofnun atvinnuveganna. Heilbrigðisnefndin bendir á að þrátt fyrir það liggi ekki enn fyrir skýrar upplýsingar um endanlegan fjölda starfa, staðsetningu starfsstöðva, starfslýsingar, launakjör eða aðra lykilþætti fyrir framtíð starfsfólksins.
„Með hliðsjón af því að ráðningarsamningum starfsmanna HNE verður sagt upp fyrir lok september er afar brýnt að starfsfólki berist skýrar upplýsingar um framtíðarstörf sín án frekari tafa svo efndir verði á þeim fyrirheitum sem gefin voru um að ráðning starfsmanna yrði frágengin áður en til uppsagna kæmi.“