Vilja friða Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi

Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, SUNN, biðla til stjórnvalda um að gera Eyjafjörð að friðunarsvæði fyrir sjókvíaeldi. Harpa Barkardóttir, sem situr í stjórn samtakanna, fjallar um málið í grein sem Akureyri.net birti í morgun.
„Það eru blikur á lofti. Í farvatninu eru áform Kleifa ehf. á Ólafsfirði um stórfellt laxeldi í Eyjafirði og á Tröllaskaga. Á ráðstefnu Hringborðs hafs og eldis og Arion banka í byrjun júní á þessu ári lét atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, í veðri vaka að Hafrannsóknarstofnun skyldi hefja vinnu við burðarþolsmat fyrir fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði,“ skrifar Harpa meðal annars.
Harpa rifar upp að fyrir fimm árum hafi þáverandi ráherra óskað eftir umsögn Hafrannsóknarstofnunar um hvort stofnunin teldi að takmarka skyldi eða banna fiskeldi eða ákveðnar eldisaðferðir í Eyjafirði. „Skemmst er frá því að segja að í svari stofnunarinnar við erindi ráðuneytis stendur m.a.; „Hafrannsóknarstofnun telur tifefni til þess að banna fiskeldi í sjókvíum í Eyjafirði. Ástæður þess eru staða villtra stofna laxfiska, þá sérstaklega bleikju og hugsanleg neikvæð áhrif á lífríki fjarðarins.“ Við hljótum að geta gengið út frá því að þessi afdráttarlausa niðurstaða Hafrannsóknarstofnunar standi nú fimm árum síðar.“
Grein Hörpu: Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði