Útsynningur á sín góðu augnablik
„Í leikskránni rakst ég á skemmtilega hugmynd: leikskrá í leikskrá. Þar var sérstök leikskrá fyrir Cloud Nine eftir Caryl Churchill, verkið sem leikhópurinn í Útsynningi er að setja á svið. Við sjáum hins vegar ekki þá sýningu heldur fylgjumst með lífinu í búningsklefanum. Þar gerist ýmislegt meðan leikararnir bíða eftir að fara inn á svið eða koma þaðan aftur, og ekki er allt jafn ilmandi.“
Þetta segir Pétur Guðjónsson m.a. í pistli um uppsetningu Freyvangsleikhússins á Útsynningi, nýju leikverki eftir Hjálmar Arinbjarnarson í leikstjórn Jóhönnu S. Ingólfsdóttur. „Það er ánægjulegt að Freyvangsleikhúsið skuli ráðast í uppsetningu á frumsömdu verki og grunnhugmyndin býður upp á ýmsa möguleika. Búningsklefi áhugaleikfélags er ágætis suðupottur fyrir ólíkar manngerðir, metnað, vináttu og skoðanir fólks á eigin ágæti. Þeir sem þekkja leikhúsið geta hæglega kannast við eitthvað af því sem þar fer fram.“
Pistill Péturs Guðjónssonar: Lífið í búningsklefanum