Úrslitaleikur Þórs og KA á Sanavelli 1988
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 120
Akureyrsk knattspyrnulið hafa tekið þátt í æfingamóti að vori í heimabænum til áratuga. Knattspyrnudómarafélag Norðurlands hefur undanfarin ár staðið fyrir móti sem kennt er við kjötvinnslufyrirtækið Kjarnafæði og því lauk einmitt í gær með sigri Þórs á KA í úrslitaleik í Boganum.
Gamla íþróttamyndin að þessu sinni er úr úrslitaleik Þórs og KA í æfingamóti í apríl árið 1988; mótið var þá kennt við Tactic, fyrirtæki í eigu Ragnars heitins Þorvaldssonar og Þorsteins Ólafssonar; Tactic framleiddi m.a. kælipoka sem íþróttamenn nota gjarnan, íþróttadrykki, olíu og krem. Þórsarar unnu 2:0 að þessu sinni með mörkum Júlíusar Þórs Tryggvasonar Siguróla „Mola“ Kristjánssonar.
Myndin er tekin á Sanavellinum sem var og hét, malarvelli á Oddeyri, í flæðarmálinu miðja vegu milli athafnasvæða Útgerðarfélags Akureyringa og Slippstöðvarinnar. Lengst til vinstri er Nói Björnsson, þá fyrirliði Þórs en nú formaður félagsins, og hægra megin er Sveinn Pálsson samherji hans. Á milli Þórsaranna er Þorvaldur Örlygsson sem ári síðar varð Íslandsmeistari með KA, kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins og í kjölfarið keyptur til enska félagsins Nottingham Forest – og er nú formaður Knattspyrnusambands Íslands. Í fjarska er Þórsarinn Valdimar Pálsson.