Fara í efni
Íþróttir

Grænn litur aldrei verið jafn fallegur

Mynd úr safni Dags

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 140

Gríðarleg uppbygging hefur staðið yfir á íþróttasvæði KA síðustu misseri eins og akureyri.net hefur fjallað um. Þar eru nú tveir keppnisvellir lagðir gervigrasi en gamla íþróttamyndin að þessu sinni var tekin fyrir hálfum fimmta áratug þegar KA-menn þökulögðu fyrsta grasvöll félagsins á Lundstúni. Maðurinn með skófluna lengst til vinstri á myndinni er Kári Árnason, sá kunni knattspyrnumaður, marksækinn framherji sem lék með KA og liði Íþróttabandalags Akureyrar. Kári varð bikarmeistari með ÍBA árið 1969 og lék 11 sinnum með A-landsliði Íslands á árunum 1961 til 1971.

Vinnu við grasvöllinn lauk haustið 1981. Af því tilefni hélt vallarnefnd félagsins kaffisamsæti í kjallara Lundarskóla þar sem félagsaðstaða KA var á þeim tíma, og sá sem þetta skrifar mætti þangað sem fréttaritari íþróttadeildar Morgunblaðsins.

Frétt sem birtist í Morgunblaðinu 10. október 1981 hófst með þessum orðum:

„Aldrei hefur mér fundist grænn litur jafn fallegur og á blettinum okkar hér fyrir norðan í sumar,“ sagði Jón Arnþórsson, formaður Knattspyrnufélags Akureyrar, m.a. í kaffisamsæti sem vallarnefnd félagsins boðaði til um helgina. Tilefnið var það, að „græni bletturinn“, hinn nýi glæsilegi grasvöllur KA-manna á athafnasvæði þeirra við Lundarskóla á Akureyri er nú fullgerður. Til stóð að vígja völlinn með knattspyrnukappleik nú í haust en ekki gat af því orðið vegna lélegs tíðarfars undanfarið en að sögn Stefán Gunnlaugssonar sem sæti á í vallarnefnd, mun það verða gert næsta vor.

Í fréttinni kom fram að vinna á KA-svæðinu hófst árið 1975 og malarvöllur félagsins var tekinn í notkun tveimur árum síðar, 1977. Sama ár var hafist handa á grasvellinum, og unnið við jarðvegsskipti árin 1979 og 1980. „Jarðvegslagnir í nýja vellinum eru u.þ.b. 1500 metrar, búið er að keyra í hann um 900 bílum af möl, um 150 bílum af mold og álíka magni af sandi. Jarðvegsvinnu lauk í júlí í sumar og höfðu þá verið unnar nálægt 5000 vinnustundir í sjálfboðavinnu, þar af 700 á þessu sumri. Í lok júlí hófst þökulagningin og lauk aðalhrinunni þann 20. ágúst, en lokahönd var lögð á verkið 20. september.“