Þrjú gull í Gautaborg og EM-lágmarki náð
Þrír keppendur frá Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) komu heim með gullverðlaun af Gautaborgarleikunum í frjálsum íþróttum sem er nýlokið. Á mótinu náði Gabríel Glói Freysson lágmarkinu í 200 metra hlaupi fyrir Evrópumeistaramótið undir 18 ára sem haldið verður um miðjan júlímánuð og alls hafa þrjú ungmenni úr UFA náð lágmörkum fyrir mótið.
Gautaborgarleikarnir hafa verið haldnir allt frá árinu 1996 og eru eitt stærsta frjálsíþróttamót sem haldið er í norðanverðri Evrópu. Mótið er ætlað ungmennum 12 ára og eldri og þátttakendur koma hvaðanæva að. Enda kalla mótshaldarar mótið Heimsleika ungmenna því keppendur eru um 3.000 talsins frá 47 löndum. UFA sendi fjölmennan hóp keppenda á mótið en alls voru íslensku keppendurnir yfir 200 talsins, frá 13 félögum.
Það voru þau Gabríel Glói, Garðar Atli Gestsson og Guðrún Hanna Hjartardóttir sem unnu til gullverðlauna fyrir hönd UFA í ár en þau eru öll fædd árið 2009 og keppa í flokki 16-17 ára á mótinu.
- Gabríel Glói sigraði í 200 metra hlaupi á tímanum 22,02 sekúndur.
- Garðar Atli sigraði í spjótkasti með kasti upp á 64,91 metra og setti mótsmet.
- Guðrún Hanna sigraði í hástökki með stökk upp á 1,64 metra.
Fjölmargir aðrir keppendur frá UFA stóðu sig með prýði á mótinu og mikið var um bætingar hjá þessu unga afreksfólki.
Þrír keppendur frá UFA hafa náð lágmörkum fyrir EM U18
Gabríel Glói náði þar með lágmarkinu fyrir Evrópumeistaramót U18 en lágmarkið er 22,10 sekúndur. Garðar Atli var þegar búinn að ná lágmarkinu í spjótkasti með kasti upp á 65,26 metra fyrr í júnímánuði og sigurkast hans á Gautaborgarleikunum var einnig langt yfir 62 metra lágmarkinu. Þriðji keppandinn frá UFA sem hefur náð lágmarki fyrir EM U18 er Tobías Þórarinn Matharel en hann náði lágmarkinu í langstökki í ágúst í fyrra með stökki upp á 7 metra slétta. Af þeim sex ungmennum sem hafa náð lágmörkum fyrir EM U18 eru því þrjú frá UFA.
Evrópumeistaramótið verður haldið í Rieti á Ítalíu dagana 16.-19. júlí nk. en reyndar hafa þremenningarnir einnig verið valdir í landsliðshóp Íslands fyrir Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri sem fram fer í Vaasa í Finnlandi um næstu helgi, þannig að það er í mörg horn að líta hjá þeim um þessar mundir!