Fara í efni
Íþróttir

Gabríel bætti sig en þeir Tobías eru úr leik á EM

Þrír UFA kappar á Evrópumeistaramóti 18 ára og yngri á Ítalíu. Frá vinstri, Tobías Þórarinn Matharel, Garðar Atli Gestsson og Gabríel Glói Freysson Mynd: Skapti Hallgrímsson

Gabríel Glói Freysson úr Ungmennafélagi Akureyrar setti persónulegt met í 200 metra hlaupi í morgun á Evrópumeistaramóti 18 ára og yngri í frjálsíþróttum sem fram fer í Rieti á Ítalíu. Hann hljóp á 21,89 sekúndum en besti tími Gabríels fyrir mótið var 22,02 sek. Tíminn dugði þó ekki til að komast upp úr riðlinum og í undanúrslit.

Tobías Þórarinn Matharel, einnig úr UFA, keppti í langstökki á EM í morgun og komst heldur ekki áfram. Hann stökk 6,64 metra en lengsta stökk hans til þessa er 7,00 metrar – þegar hann varð Íslandsmeistari utanhúss á síðasta ári.

Tobías Þórarinn stökk 6,64 m í fyrstu tilraun en gerði hinar tvær ógildar. Frakkinn Maidis Gorrillot stökk lengst allra í morgun, 7,78 metra. Úrslit í greininni fara fram á morgun.

Gabríel Glói fékk 29. besta tímann í morgun en keppendur voru 36. Hann varð sjötti í sínum riðli, Bretinn Athan Heggarty var fljótastur allra í riðakeppninni í morgun, hljóp á 20,77 sek. sem er mótsmet.

Garðar Atli kastar á morgun

Þriðji landsliðsmaðurinn úr UFA á mótinu í Rieti, spjótkastarinn Garðar Atli Gestsson, keppir á morgun. Samkvæmt heimasíðu Evrópumeistaramótsins er Garðar Atli með 17. besta árangur af 27 þáttakendum; er sagður hafa hafa kastað lengst 65,26 metra en þær upplýsingar eru úreltar því hann bætti sig á móti í Mónakó fyrir skemmstu eins og akureyri.net greindi þá frá. Garðar Atli kastaði 65,35 metra í Mónakó – nánar um það mót hér:

Finninn Jere Murto hefur kastað lengst allra þeirra sem keppa í spjótkastinu á morgun, 80,24 metra. Hann náði þeim árangri á þessu ári og er sá eini þátttakenda á morgun sem rofið hefur 80 metra múrinn.