Tryggvi Georgsson og Einar Helgason 1958
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 121
Akureyrarfélögin hefja leik á morgun í Bestu deild karla, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Hvað er þá meira við hæfi en að gamla íþróttamyndin þessa helgina sé úr viðureign KA og Þórs á árum áður? Sennilega ekkert ...
Þarna eru kunnir kappar á ferð á Akureyrarvelli og því má slá föstu að myndin sé tekin í leik KA og Þórs í Norðurlandsmótinu í september 1958. Tryggvi Georgsson miðherji Þórs sækir þarna að Einari Helgasyni markverði KA.
Þrjú félög tóku þátt í Norðurlandsmótinu 1958, Akureyrarfélögin og Knattspyrnufélag Siglufjarðar. KA-menn byrjuðu á því að vinna KS 5:0, Þórsarar sigruðu svo Siglfirðingana 10:2 og úrslitaleikurinn var líka ójafn; KA sigraði þá Þór 5:1 og varð þar með Norðurlandsmeistari fimmta árið í röð.
Eins og fram kom í fróðlegri og skemmtilegri grein Víðis Sigurðssonar á akureyri.net í gær skoraði Tryggvi Georgsson fyrsta mark Akureyringa í 1. deild Íslandsmótsins. Lið Íþróttabandalags Akureyrar, ÍBA, lék fyrst í efstu deild 1956 og Tryggvi gerði markið í 3:1 sigri á Víkingi 29. júlí á Melavellinum í Reykjavík.
KA-maðurinn til vinstri á myndinni er Birgir Hermannsson, faðir Steingríms, sem var í Íslandsmeistaraliði KA 1989. Birgir var sonur Hermanns Stefánssonar íþróttafrömuðar.
Önnur skemmtileg tenging er að sonarsonur Einars Helgasonar markvarðar, Kári Gautason, er einn leikmanna KA-liðsins í dag.
- Smellið á myndina hér að neðan til að sjá grein Víðis Sigurðssonar frá því í gær – Akureyrarlið í efstu deild í 48. skipti
https://www.akureyri.net/is/ithrottir/akureyrarlid-i-efstu-deild-i-48-skipti
