Fara í efni
Mannlíf

Þráinn: Súkkulaði er ekki bara sælgæti

Þráinn Lárusson fjallar um súkkulaði í fróðlegum og skemmtilegum matarpistli sem akureyri.net birtir í dag. Þráinn bjó um tíma í lok síðustu aldar í borginni Oaxaca í Mexíkó þar sem hann rak veitingastaði. Hann segir m.a. frá þegar hann fór með meðeiganda sínum að kaupa súkkulaði fyrir staðina. „Þetta var ekki súkkulaði sem við fengum úr hillum verslana, ekki glansandi súkkulaðiplötur í álpappír, heldur ristaðar kakóbaunir sem voru malaðar á staðnum með sykri og kanilstöngum. Úr kvörninni rann þykkur, dökkur massi sem var svo heitur að ekki var hægt að snerta hann með berum höndum. Hitinn kom úr núningsaflinu sjálfu. Massinn var beiskur, jarðkenndur og djúpur á bragðið. Þegar hann kólnaði varð hann harður eins og steinn. “

Þetta segir Þráinn Lárusson í matarpistli sem akureyri.net birtir í dag.

Þráinn segir einnig: „Úr massanum mátti búa til drykk, en oftar fór hann í mole – flóknar og ilmandi sósur sem eru meðal stoltustu rétta mexíkóskrar matargerðar. Í Oaxaca er talað um sjö mole, en ekki allar innihalda súkkulaði. Það er fyrst og fremst hin dökka og djúpa mole negro sem gerir það. Súkkulaðið er þó alls ekki til að gera sósuna sæta heldur þvert á móti til að dýpka hana og gefa henni dökkan, jarðkenndan tón sem heldur saman þurrkuðum og ristuðum eldpaprikum, margskonar kryddi og hnetum.“

  • Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.

Pistill Þráins í dag: Súkkulaði – ekki bara sælgæti