Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar léku vel en töpuðuu stórt

Aron Birkir Stefánsson fyrirliði og markvörður Þórs var góður þrátt fyrir stórt tap. Mynd: Ármann hinrik

Þórsarar geta nagað sig fast í handarbökin að hafa ekki nýtt dauðafærin sem þeir fengu í fyrri hálfleik gegn Breiðabliki í Kópavogi í kvöld, í fjórðu umferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu. Það fyrra strax á fyrstu mínútu og annað skömmu eftir að Blikarnir komust í 1:0 um miðbik hálfleiksins; í hvorugt skiptið tókst Þórsurum að koma boltanum í netið og svo fór að Breiðablik vann 4:0.

Vert er að geta þess strax að 20 mínútum fyrir leikslok, þegar staðan var 2:0, kom Sigfús Fannar Gunnarsson boltanum í mark Breiðabliks eftir hornspyrnu en Vilhjálmur Alvar dómari sá eitthvað athugavert og dæmdi brot á Þórsara sem var óskiljanleg ákvörðun.

Sigfús Fannar Gunnarsson, til hægri, kom boltanum í mark Fram í seinni hálfleik en það var ekki talið löglegt.

Ágúst Eðvald í stað Atla

Ein breyting var gerð á byrjunarliði Þórs frá sigrinum á Fram í síðustu umferð, Ágúst Eðvald Hlynsson hóf leikinn en Atli Sigurjónsson var í hópi varamanna. Ekki voru liðnar nema 20 mínútur þegar Bjarni Guðjón Brynjólfsson meiddist og varð að fara út af og Aron Ingi Magnússon leysti hann af hólmi. Reiknað var að miðvörðurinn Ragnar Óli Ragnarsson, sem misst af leiknum við Fram vegna meiðsla, yrði klár í slaginn í kvöld en hann var ekki í hópnum; Ásbjörn Líndal Arnarsson lék því aftur við hlið Yann Emmanuel Affi í miðri vörninni og bakverðirnir voru þeir sömu og síðasta nema hvað þeir voru ekki sömu megin og þá; Kristófer Kristjánsson var vinstri bakvörður, væntanlega til að hafa gætur á hinum eldlfljóta Ágústi Orra og Sverrir Páll var hægra megin.

Þórsarar magnaðir í fyrri hálfleik

Leikurinn var afar fjörugur, Þórsarar fengu fleiri góð færi en þau sem nefnd voru að framan og Blikarnir voru líka oft nálægt því að skora. Liðin buðu upp á opinn og fjörugan leik, örugglega of opinn að mati áhugamanna um sterkan og agaðan varnarleik!

Fyrri hálfleikurinn var án efa sá besti hjá Þórsurum í sumar og 1:0 forysta Blikanna í hálfleik beinlínis ósanngjörn. Þegar upp var staðið var sigur þeirra hins vegar sanngjarn – skárra væri það nú, þegar leikur endar 4:0.

Þórsarar mættu fullir sjálfstrausts til leiks og byrjuðu af fítonskrafti og ekki var liðin nema ein mínútu þegar Ágúst Eðvald Hlynsson komst einn í gegn eftir að Isaac Atanga skallaði boltann til hans. Ágúst lék inn í teig, var í dauðfæri en Anton Ari varði frá honum.

Ekki leið á löngu þar til Ágúst Eðvald komst aftur inn á teig og lét vaða á markið en boltann fór framhjá.

Eftir að fyrstu 10 mínúturnar voru að mestu eign Þórsara komust heimamenn meira inn í leikinn og gerðu fyrsta markið eftir 20 mínútur; Kristófer Ingi Kristinsson var þar að verki úr miðjum vítateignum eftir laglega sendingu.

Christian Gregko Jakob dauðafæri í fyrri hálfleiknum en hitti ekki markið.

Aftur dauðafæri

Fimm mín. síðar fékk Þór aftur dauðafæri, raunar mun betra en Ágúst Eðvald fékk í blábyrjun leiksins. Það kom eftir glæsilega skyndisókn; Aron Ingi gat út á vinstri kant á Atanga, hann lék inn á teig og sendi á „Greko“ Jakobsen sem stakk sér inn á teig á hárréttum tíma en skaut framhjá opnu markinu. Ótrúlegt að sjá hjá þessum öfluga, reynda leikmanni.

Aftur voru Þórsarar nálægt því að skora þegar hálftím var liðinn. Þeir náðu boltanum á miðjum vallarhelmingi Blika, Ágúst Eðvald óð fram og skaut frá vítateig, boltinn fór af varnarmanni og stefndi í markið en Anton Ari gerði frábærlega og náði að blaka boltanum yfir markið og aftur fyrir.

Blikar mun betri

Eins og fyrri hálfleikurinn var góður af hálfu Þórs var sá síðari mun lakari. Það var með ólíkindum að Þórsarar skoruðu ekki í fyrri hálfleik. Þeir fengu í raun ekkert hættulegt færi gegn Fram í síðustu umferð en unnu 1:0 – með marki Norðmannsins Haugland úr frábæru skoti rétt utan vítateigs – en nú voru alvöru færi í boði sem ekki nýttust. í seinni hálfleik stjórnuðu Blikar ferðinni að mestu, þeir komust í 2:0 með marki Antons Loga Lúðvíkssonar á 64. mín. Þórsarar komu boltanum út fyrir teig eftir hornspyrnu og þegar hann var sendur aftur inn á teig var Anton Logi algjörlega óvaldaður og skoraði af markteignum.

Skömmu áður hafði Aron Birkir fyrirliði Þórs sýnt stórbrotin tilþrif þegar hann varði skot Davíðs Ingvarssonar sem stefndi upp í samskeytin. Ekki var við Aron að sakast þótt mörkin yrðu fjögur.

Í stöðunni 2:0 „skoraði“ Sigfús Fannar sem fyrr sagði en markið telst ekki með því dómarinn kom auga á eitthvað ólöglegt sem enginn annar varð var við. Þórsarar fengu hornið eftir að þeir fengu enn eitt upplagða færið til að skora; eftir góðan sprett Ágústs Eðvalds sendi hann á Atla Sigurjónsson en Anton Ari varði skot hans af stuttu færi. Anton Ari reyndist Þórsurum óþægur ljár í þúfu að þessu sinni.

Blikar bætti við marki á 86. mín. og öðru þegar uppbótartíma var um það bil að ljúka. Þeir höfðu verið mikið meira með boltann í seinni hálfleik og ógnað marki Þórsara hvað eftir annað.

Þórsarar léku mjög vel að mörgu leyti í fyrri hálfleik eins og áður sagði en áttu erfiðara uppdráttar í þeim seinni. Liðið varðist ekki eins vel sem heild, bakverðirnir voru til dæmis ansi berskjaldaðir á köflum.

Stórt tap var staðreynd í þetta sinn en staðan í deildinni er samt alls ekki slæm. Nýliðarnar geta ekki annað en verið nokkuð sáttir við tvo sigra í fjórum fyrstu leikjunum; að hafa sex stig af 12 mögulegum. Nú er mikilvægt að ná sér niður í jörðina enda enginn smá leikur framundan; fyrri Akureyrarleikur sumarsins. Þór fær KA í heimsókn um næstu helgi og ljóst að þar verður barist til síðasta blóðdropa, innan vallar sem utan!

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan i deildinni