Fara í efni
Íþróttir

Tímamótamark og eitt stig Þórs/KA gegn FH

Erin Flurey var vel fagnað, eins og nærri má geta, þegar hún skoraði undir lokin og tryggði Þór/KA stig gegn FH. Mynd: Ármann Hinrik

Bandaríski framherjinn Erin Flurey tryggði Þór/KA eitt stig með marki undir lokin gegn FH í dag í fyrstu umferð Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Hún jafnaði 1:1 þegar hefðbundnum leiktíma var að ljúka, markið var bæði kærkomið og dýrmætt en það var líka sögulegt; þetta var 800. mark Þórs/KA í efstu deild frá upphafi.

Þór/KA sótti af krafti á upphafsmínútum leiksins en það voru hins vegar FH-ingar sem tóku forystuna á áttundu mínútu. Það var í fyrsta skipti sem gestirnir komust nálægt marki Þórs/KA; Thelma Lóa Hermannsdóttir fékk laglega sendingu aftur fyrir Bríeti vinstri bakvörð, Arna Sif Ásgrímsdóttir náði ekki að stöðva hana og Thelma skoraði með föstu skoti í fjærhornið. Boltinn lá í netinu þegar 7 mínútur og 44 sekúndur voru búnar.

FH náði þarna að opna vörn Þórs/KA óþægilega auðveldlega og atvikið gaf tóninn fyrir lungann af fyrri hálfleik. FH-ingar tóku völdin eftir markið, sóttu mun meira og voru líklegri til að bæta við marki í fyrri hálfleiknum en heimamenn að jafna.

Mjög laglegt jöfnunarmark! Erin Flurey mundar hægri fótinn og skorar með föstu skoti neðst í vinstra hornið. Myndir: Ármann Hinrik

Þór/KA náði aðeins að klóra í bakkann undir lok hálfleiksins en áberandi var hve leikmönnum liðsins gekk illa að halda boltanum, sendingar voru ónákvæmar og oft tilviljakenndar. Það einkenndi leik liðsins áfram framan af seinni hálfleik, en þá var reyndar meira jafnræði með liðunum.

Eftir því sem á leikinn leið efldust leikmenn Þórs/KA, veruleg hætta skapaðist þó ekki oft við FH-markið, en í lokin varð Katla María Þórðardóttir, fyrirliði FH, fyrir því óláni að renna hægra megin í vítateignum eftir að hafa fengið sendingu frá markmanninum. Hún færði Erin Flurey þannig boltann á silfurfati og sú bandaríska þakkaði kærlega fyrir sig; ekki var þó sjálfgefið að Flurey skoraði því hún var ekki í dauðafæri. Fékk boltann á vítateigslínu, lék aðeins innar á völlinn og skaut áður en Katla María náði að kasta sér fyrir boltann. Markvörður FH hreyfði hvorki legg né lið enda skotið lúmskt; Flurey lyfti boltanum ekki eins og algengast er heldur skaut honum fast, nánast með jörðinni, hann fór í innanverða nærstöngina og í netið. Gríðarlega vel að verki staðið.

Hildur Anna Birgisdóttir faðmar Erin Flurey að sér eftir markið og Margrét Árnadóttir, sem kemur aðvífandi frá vinstri, lætur sitt aldeilis ekki eftir liggja í gleðinni. Mynd: Ármann Hinrik

Nokkrar breytingar hafa orðið á liði Þórs/KA síðan í fyrra og spennandi verður að fylgjast með því í sumar.

Ljóst er að Arna Sif Ásgrímsdóttir styrkir liðið gríðarlega; hún hefur strítt við meiðsli í vetur og er augljóslega ekki komin í fullkomna leikæfingu en stóð sig engu að síður mjög vel. Var eins og klettur í vörninni og þær Hulda Björg ná vel saman sem miðverðir. Örnu var skipt út þegar um 10 mínútur voru eftir.

Framherjinn Flurey er annar leikmaður sem mikið mun mæða á. Hún byrjaði á bekk varamanna í dag en lék síðasta hálftímann og hressti upp á sóknarleikinn. 

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson tók við þjálfun liðsins í vetur. Vert er að nefna þá áhugaverðu breytingu sem hann hefur gert að Karen María Sigurgeirsdóttir leikur nú sem aftasti miðjumaður og mun örugglega nýtast vel þar enda klókur leikmaður. Þjálfarinn boðar breyttan leikstíl, vill skora mikið af mörkum og óskandi er að það gangi eftir.

Eitt stig er viðunandi fyrir Þór/KA úr leik dagsins. FH er spáð öðru sæti Bestu deildarinnar en Þór/KA því sjöunda, en samkvæmisleiki eins og hinar árlegu spár þarf þó ekki til að halda því fram að jafntefli hafi verið góð niðurstaða í dag. Frammistaðan var þannig að stigið var gott.

Leikskýrslan af vef KSÍ

Byrjunarlið Þórs/KA í fyrsta deildarleik sumarsins , gegn FH í dag. Aftari röð frá vinstri: Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Amalía Árnadóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Alessandra Doherty Augur. Fremri röð frá vinstri: Hulda Björg Hannesdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Karen María Sigurgeirsdóttir. Mynd: Ármann Hinrik