Fara í efni
Mannlíf

Þorrinn blótaður um borð í Húna II

Sigursteinn Kristinsson og Sigfús Ólafur Helgason sáu til þess að allir fengu nóg að borða. Myndir: Þorgeir Baldursson

Þorrinn er blótaður um borg og bí þessa dagana, m.a. komu Hollvinir Húna II saman í trébátnum fallega þar sem hann liggur við bryggju á Akureyri og gerðu sér glaðan dag.

Veislan þótti vel heppnuð. „Sigfús Ólafur B Helgason og Sigursteinn Kristinsson báru hitann og þungann af þessu verkefni og kláruðu það með sóma og báru þetta fram sem alvanir atvinnumenn í faginu væru,“ segir á bloggsíðu Þorgeirs Baldurssonar, hirðljósmyndara Hollvina Húna, sem tók þátt í gleðinni, vopnaður myndavél að vanda.

Fleiri myndir sjá hér á bloggsíðu Þorgeirs Baldurssonar