Fara í efni
Íþróttir

Þekkirðu þessa ungu handbolta-Þórsara?

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 127

Íþróttafélagið Þór er 111 ára í dag og því tilvalið að draga fram þessa mynd sem tekin var í Íþróttaskemmunni á Oddeyri á fyrri hluti áttunda áratugarins. Þetta er að líkindum 3. flokkur félagsins í handbolta og marga kunna kappa er að finna á myndinni, m.a. núverandi formann Þórs, Nóa Björnsson. Fleiri nöfn verða ekki nefnd að sinni heldur lesendum boðið upp á skemmta sér við að þekkja þessa ungu myndarlegu menn! Upplýsingar má gjarnan senda á netfangið skapti@akureyri.net og þau verða birt síðar.