Þekkir einhver þessa hlaupagarpa á Eyrinni?

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 85
Hið árlega Akureyrarhlaup Ungmennafélags Akureyrar (UFA) fer fram næsta fimmtudag, 3. júlí. Því er vel við hæfi að gamla íþróttamyndin að þessu sinni sé af hlaupagörpum á ferð um Akureyri.
Myndin mun tekin í svokölluðu Oddeyrarhlaupi, boðhlaupi sem þreytt var árum saman, í síðasta sinn um miðjan sjötta áratuginn – líkast til 1953. Hlaupið var um Eyrina eins og nafnið ber með sér enda voru íþróttasvæði bæði Þórs og KA þar á þeim tíma.
Á myndinni má sjá hús sem alltaf var kallað Nótastöðin á árum áður en þar er Hampiðjan nú með starfsemi. Í fjarska er svo hinn tignarlegi Kaldbakur.
Margir þekktir íþróttamenn tóku þátt í Oddeyrarhlaupinu ár eftir ár. Þann sem þetta skrifar grunar hverjir eru á myndinni en upplýsir ekki að sinni heldur leyfir lesendum að spreyta sig. Ábendingar þar að lútandi eru vel þegnar, í pósti á netfangið skapti@akureyri.net