Fara í efni
Mannlíf

Strætó nátengdur lífi og starfi bæjarbúa

„Þegar ég var að vaxa úr grasi var ekki mikill munur á Akureyri og Reykjavík, þannig lagað. Báðir staðir voru með bíó, leikhús, bókasafn, knattspyrnuvelli og frambærilegar plötubúðir. Hvað þurfti maður meira? Eitt hafði þó höfuðborgin fram yfir höfuðstaðinn – strætisvagna. Sú menning var öll í skötulíki á Akureyri.“

Þannig hefst Orrablót dagsins; pistill Orra Páls Ormarssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu. Orri Páll skrifar pistil – Orrablót – annan hvern föstudag fyrir akureyri.net.

„Það breyttist sem hendi væri veifað sumarið 1981, þegar Strætisvagnar Akureyrar tóku í notkun flunkunýjan vagn af gerðinni Mercedes Benz, fyrst einn og svo annan. Þið munið, þessa grænu og hvítu. Þeir eru til þessa dags glæsilegustu farartæki sem þessi penni hefur augum litið og báru af hlandgulu vögnunum fyrir sunnan, eins og gull af taði.“