Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Kæra Sólveig Hulda, ég get engan veginn náð því að þú sért ekki hér á meðal okkar lengur. Það er svo óraunverulegt og getur ekki verð satt. Má ekki vera satt. Rétt eins og sr. Hildur Eir sagði, þá má dauðinn skammast sín fyrir að taka þig frá okkur.
Það er varla nokkur heppnari en ég,
þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram, enginn vafi er um það.
(Guðmundur Jónsson/Stefán Hilmarsson)
Við sitjum eftir hnípin en á sama tíma svo afskaplega þakklát fyrir að hafa átt þig að. Við erum öll aðeins ríkari fyrir vikið. Við höfum þekkst frá því við vorum 14 ára gamlar og tengingin varð meiri þegar ég tók saman við uppeldisbróður þinn og frænda. Þú áttir nú alveg smá þátt í því samkrulli. Þið voruð ávallt eins og systkini, í það minnsta hélt mín fjölskylda lengi vel að þið væruð systkin og Snæfríður Dögg mín hélt það í mörg ár. Þú varst kletturinn í lífi svo margra, til þín gátum við alltaf leitað, í gleði og sorg. Í síðustu skilaboðunum sem ég á frá þér segir þú: „Heyrðu, já, æi, sorry, ég nenni ekki að skrifa, ég er að gera svo margt í einu…“ Mjög svo lýsandi fyrir þig. Alltaf að, alltaf eitthvað að brasa og nóg að gera. Þú gafst alltaf svo mikið af þér, varst í miðju alls þess sem var. Afmælið þitt síðasta sumar var einstakt, þú ljómaðir, sem og Garðar og stelpurnar. Ástin á milli ykkar og tengingin svo sterk, nánast áþreifanleg.
Heimurinn hefur misst lit, það vantar bjarta brosið þitt, glettnina, gleðina og kraftinn.
Kæri Garðar, Guðrún, Kolbrún og Eyrún. Orð mega sín lítils í þessari miklu sorg en við Gummi viljum að þið vitið að við erum hér. Fyrir ykkur. Alltaf og hvenær sem er. Soffía og Reynir, Siggi (nafni), Guðmundur afi, tengdasynir, barnabörn, foreldrar, systkini, ættingjar og vinir. Ég bið þess að allt gott megi vaka yfir ykkur og styrkja. Við erum öll harmi slegin en ég veit að Sólveig Hulda vakir yfir okkur og styrkir. Hún myndi segja okkur að halda áfram og njóta augnabliksins. Þakka fyrir hvern dag sem okkur er gefinn.
Við erum undir þínum áhrifum í dag og verðum það áfram, kæra Sólveig Hulda. Minning þín mun lýsa okkur sem eftir sitjum svo að við fáum styrk til að komast í gegnum sorgina og sætta okkur við það sem orðið er.
Í sorginni er ég líka full þakklætis. Takk fyrir hlýjuna. Takk fyrir vináttuna. Takk fyrir að fá að vera hluti af lífi þínu. Takk fyrir þig, takk fyrir allt. Þú
gerðir heiminn að betri stað með veru þinni í honum. Takk.
Sonja Dröfn Helgadóttir
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir