Fara í efni
Minningargreinar

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Mig langar að skrifa nokkur orð um ómetanlega konu. Við Sólveig höfum unnið saman frá því að hún byrjaði á lyflækningadeildinni á SAk. Síðustu 10 árin var ég deildarstjóri og hún aðstoðar og svo fyrir tæpu ári tók hún við af mér þegar ég hætti. Hún hafði áfram aðgang að mér og það voru ófá skilaboðin sem ég fékk frá henni á ýmsustu tímum varðandi deildina en hún var alltaf að með hana í huga. Við vorum meira en bara vinnufélagar og ræddum okkar á milli um allt mögulegt og gerðum margt saman.

Sólveig var besti hjúkrunarfræðingur sem ég hef unnið með og hún vissi þá skoðun mína. Hún bar alltaf heildarhag sjúklingana fyrir brjósti og fékk mikið út úr því að sinna þörfum þeirra. Hún vildi að allt væri vel gert allt frá umbúnaði rúms til útskriftar. Þegar hún fór meira yfir í stjórnun saknaði hún þessa hluta og fannst alltaf gaman þegar hún gat hjápað til.

Sólveig var ekki bara boðin og búin að hjálpa skjólstæðingum sínum heldur var hún alltaf að hjálpa öllum öðrum, bæði vinum, fjölskyldu og samstarfsfélögum sama hvað það var og gekk oft ótrúlega langt til þess.

Ég veit ekki hvernig hægt er að kveðja hana, ég sé hana fyrir mér í svo mörgu á deildinni, heyri hláturinn og sé taktana. En þó svo að missir okkar í vinnunni sé mikill þá jafnast það ekkert á við fjölskylduna sem hún elskaði svo mikið.

Elsku Garðar, Guðrún, Kolbrún, Eyrún og allir hinir megi Guð blessa ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímum.

Þóra Ester

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Pétur Þór Jónasson skrifar
10. mars 2026 | kl. 09:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Starfsfólk lyflækningadeildar SAk skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Elísabet Hlín Adolfsdóttir  skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Sonja Dröfn Helgadóttir skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Elísabet Ásgrímsdóttir skrifar
09. mars 2026 | kl. 14:00

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Herdís Elín Þorvaldsdóttir skrifar
09. mars 2026 | kl. 06:00