Fara í efni
Mannlíf

Söguleg eign Zonta og fyrsta símtækið

„Það má eflaust færa rök fyrir því, að Nonnahús sé eitt frægasta húsið á Akureyri á heimsvísu. Það er nefnilega kennt við rithöfundinn Nonna eða Jón Sveinsson sem naut mikilla vinsælda víða um heim m.a. á meginlandi Evrópu (þar sem hann var lengst af búsettur) og bækur hans þýddar á tugi tungumála.“

Þannig hefst nýjasti pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í þeirri stórfróðlegu röð hans, Hús dagsins. Arnór segir Nonnahús ekki hreykja sér hátt „heldur stendur næsta lítillátt að húsabaki við Aðalstrætið, næst norðan við Minjasafnsgarðinn og Minjasafnskirkjuna. En að baki hvaða húss stendur Nonnahús? Það er nefnilega Aðalstræti 54 og 54a.“

Að þessu sinni fjallar Arnór Bliki um Aðalstræti 54 í mjög fróðlegum pistli, eins og hans er von og vísa. „Aðalstræti 54 og 54a kemur fyrir sjónir sem eitt hús en er í raun tvö hús, byggð með áratugs millibili. (Raunar eru þau byggð á sitt hvorri öldinni). Enda þótt húsin séu vissulega tvö, þó sambyggð séu, verður hér, til hægðarauka, talað um húsin sem eina heild og talað um suðurhluta (54) og norðurhluta (54a).“

Pistill Arnórs Blika: Hús dagsins: Aðalstræti 54 og 54a