Snýst ekki sérstaklega um stöðuna í deildinni
Sigurður Heiðar Höskuldsson er rúmlega hálfnaður á sínu þriðja tímabili sem þjálfari knattspyrnuliðs Þórs sem sækir KA heim í nágrannaslag í Bestu deild karla annað kvöld, mánudagskvöld.
Þar er heldur betur mikið í húfi og Sigurður var fljótur að komast að því eftir komuna til Akureyrar að leikur milli Þórs og KA snýst ekki bara um hversu dýrmæt stig eru í húfi fyrir bæði liðin. Eins og nú þegar KA er í tíunda sæti og Þór í því tólfta og aðeins þrjú stig skilja liðin að.
„Leikurinn leggst frábærlega í mig. Það er svo margt búið að gerast síðan við mættum KA í vor að það er eins og það séu liðin ár og aldir síðan sá leikur fór fram. Það var svakaleg umgjörð og stemning í kringum þann leik, og þegar Þór og KA mætast er náttúrulega um að ræða allt öðruvísi leiki en aðra fótboltaleiki.
Ég man bara hvernig það var þegar ég kom fyrst hingað til Akureyrar. Bara það að spila æfingaleik við KA á undirbúningstímabilinu var allt öðruvísi en ég hafði nokkurn tíma séð,“ sagði Sigurður við akureyri.net.

Stuðningsmenn Þórs á leiknum við KA í byrjun. Stemningin á VÍS-velli Þórs var frábær þann dag.
Ættum að vera með meira sjálfstraust
„Það er klárlega mikið undir þegar þessi lið mætast í sömu deild og hvorugt er ánægt með sína stöðu og stigasöfnun. Maður pælir yfirleitt ekki rosalega mikið í stöðunni í deildinni, fókusinn er alltaf svo mikill á næsta leik, en leikurinn á mánudaginn snýst ekkert sérstaklega um stöðuna í deildinni. Hann snýst miklu frekar um að þetta sé leikur á milli KA og Þórs.
En við komum beint úr frábærum sigri gegn Víkingi og ættum því að mæta til leiks með mikið meira sjálfstraust en verið hefur í liðinu upp á síðkastið. Við fengum inn tvo nýja menn í þeim leik og nú eru komnir tveir í viðbót. Okkur vantaði fersk andlit í hópinn eftir að hafa misst tvo útlendinga úr hópnum, annan með fótbrot og hinn með heimþrá. Hópurinn öskraði á ný andlit, Aron Einar og Gyrðir Hrafn stóðu sig frábærlega gegn Víkingi, þetta fór langt með að vera fullkomin frammistaða hjá þeim báðum, og nú eru komnir tveir í viðbót þannig að við erum ótrúlega spenntir fyrir framhaldinu.“
Sigurður vísaði þar til þess að Aron Einar Gunnarsson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, sem komu til liðs við Þór fyrir leikinn gegn Víkingi, áttu báðir stóran þátt í 2-1 sigrinum, en Gyrðir skoraði seinna markið rétt fyrir leikslok og Aron stýrði liðinu á miðjunni.

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson var frábær í fyrsta leiknum með Þór. Hér skorar hann sigurmarkið gegn Íslandsmeisturum Víkings (2:1) með skalla eftir hornspyrnu Einars Freys Halldórssonar.
Þrír sem verða ekki með en tveir nýir í hópnum
Hann getur ekki stillt upp sama liði gegn KA því Aron er farinn aftur til Katar og þeir Ágúst Eðvald Hlynsson, sem hefur skorað í þremur síðustu leikjum Þórs, og Bjarni Guðjón Brynjólfsson verða báðir í leikbanni vegna gulra spjalda og óvissa er með nokkra leikmenn. Christian Greko Jakobsen og Ragnar Óli Ragnarsson þurftu að fara af velli gegn Víkingi vegna meiðsla. Þá er framherjinn Ingimar Arnar Kristjánsson búinn að kveðja Þór og genginn til liðs við Aarhus Fremad í Danmörku.
Í staðinn hefur Sigurður fengið í hópinn spænska framherjann Víctor Bertomeu og Þorra Ingólfsson, tæplega 17 ára gamlan sóknarmann sem kemur í láni frá Víkingi og var einmitt í byrjunarliðinu gegn Þór um síðustu helgi.
„Aron, Ágúst og Bjarni verða ekki með, Greko og Ragnar eru smá spurningarmerki og Ingimar er farinn til Danmerkur. Atli Sigurjónsson er hins vegar að koma til baka og verður í hópnum og við teljum okkur vera með nokkuð þéttan hóp fyrir þennan leik,“ sagði Sigurður.

Aron Einar Gunnarsson, fyrir miðri mynd, reyndist Þórsliðinu gríðarlegur styrkur í leiknum gegn Víkingi en það reyndist eini leikur hans með Þór í sumar. Einar Freyr Halldórsson, til vinstri, er nærri tveimur áratugum yngri en Aron – verður 18 ára í haust. Bæði mörk Þórs gegn Víkingi komu eftir að hann tók hornspyrnu.
Þetta þekkist varla í dag
Hann er ánægður með nýjustu mennina tvo sem báðir gætu komið við sögu á mánudagskvöldið.
„Þorri kemur frábærlega inn í hópinn og sýnir mikinn vilja til að verða alvöru fótboltamaður með því að koma út á land sextán ára gamall og búa einn hér á Akureyri, sem þekkist varla í dag. Mér finnst mjög spennandi að sjá svona karakter koma inn í hópinn hjá okkur, þetta er strákur sem ætlar sér stóra hluti í fótbolta og við erum stoltir af því að vera hluti af þeirri vegferð hjá honum, að hann skuli vilja koma hingað til að þróa sinn leik.
Spánverjinn er mættur og verður klár fyrir leikinn á mánudag. Hann var á fyrstu æfingunni hérna á föstudag og er ánægður með sólina á Akureyri! Við þurftum framherja, Ingimar er farinn og þetta er hreinræktuð nía sem hefur spilað á Indlandi og í Hong Kong og raðað inn mörkum þar. Við erum því dálítið spenntir fyrir honum.“

Þorri Ingólfsson, til vinstri, og Víctor Bertomeu bættust í leikmannahóp Þórs í vikunni.
Þeir hljóta að stressast upp við það
- Og nú er mikið í húfi gegn KA!
„Já, montrétturinn er undir, fram að næsta leik, þannig er þetta alltaf. Við töldum okkur vera betra liðið gegn þeim síðast, á okkar heimavelli, en það telur ekki neitt þegar þú tapar leiknum. Við ætlum að hefna fyrir þann ósigur, það er klárt.“
- Breytir einhverju að spila á nýjum velli hjá KA og með fleiri áhorfendur en annars hefði verið?
„Já, það verða fleiri áhorfendur og meiri stemning. Þeir hljóta að stressast upp við það!“