Íþróttir
Þór áfram í Bestu deildinni – KA fellur
24.10.2026 kl. 16:00
Á sama tíma að ári! Þórsarar fagna sigrinum á FH í dag á heimavelli Þróttar í Laugardal, á sama blettinum og eftir að þeir unnu Þrótt í lokaumferð Lengjudeildarinnar í fyrrahaust eftir að hafa tryggt sér sigur í deildinni og sæti í þeirri efstu á ný. Mynd: Ármann Hinrik
Þór heldur sæti sínu í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu en KA er fallið niður í Lengjudeildina.
Þór vann FH 2:1 á útivelli í dag og lýkur keppni með 30 stig, jafnmörg stig og FH. KA burstaði ÍBV 5:1 á heimavelli en það dugði skammt því liðið endar í næst neðsta sæti með 29 stig. ÍBV var þegar fallið með 22 stig.
Þórsarar léku á ný í efstu deild í sumar eftir 12 ára fjarveru en KA-menn kveðja Bestu deildina eftir að hafa leikið þar 10 ár í röð.
Meira síðar