Slakaðu á maður, þetta er bara Fúsi!
Hver er merkilegasti dægurtónlistarmaður Akureyrarsögunnar? Hver er merkilegasta hljómsveitin?
Orrablót dagsins byrjar á þessum „einföldu“ spurningum! Orri Páll Ormarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, skrifar pistla fyrir akureyri.net og birtast þeir annan hvern föstudag eins og þorra lesenda er án efa vel kunnugt. Í dag eiga dægurtónlistarmenn hug hans allan og þar koma ýmsar kanónur við sögu eins og nærri má geta.
Í beinu framhaldi af spurningunum tveimur segir Orri: „Ekki bíða eftir svari frá mér, ég hef ekki hugmynd um það. Þetta er meira svona samviskuspurning fyrir ykkur hin og þess vegna vini ykkar og kunningja. Ef til vill samkvæmisleikur fram að sumarsólstöðum. Þið munið bara að deila niðurstöðum með mér!“
Hann segir: „Þegar ég man fyrst eftir mér var bara einn kóngur í tónlistinni á Akureyri og hafði verið lengi – Ingimar Eydal. Hljómsveit hans hafði gert garðinn frægan fr því í fimmunni og fyllt Sjallann oft í viku um langt árabil, líka þegar allt áfengi var læst inni í skáp (var það ekki á miðvikudögum?).“
- Orrablót dagsins: