Fara í efni
Fréttir

Skógræktarfélagið heggur í verðbólguna

Hljómsveitin Birkibandið leikur jafnan á árlegum Skógardegi í Kjarnaskógi; myndin er tekin á þeim fallega degi á síðasta ári. Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem fer fyrir sveitinni situr við hljómborðið. Mynd: Hilmar Friðjónsson
Félagsgjald í Skógræktarfélagi Eyfirðinga hefur verið lækkað um 7,5% – sömu prósentu og stýrivextir eru nú hérlendis eftir nýlega hækkun Seðlabanka Íslands.
 
Í tilkynningu frá félaginu segir meðal annars: „Skógræktarfélag Eyfirðinga hugar ekki aðeins að vexti trjágróðurs, heldur lætur sig vexti almennt, og þá sérstaklega stýrivexti, miklu varða. Í ljósi þess að Seðlabanki Íslands hækkaði nýverið stýrivexti þannig að þeir nema nú 7,5%, ákvað Skógræktarfélag Eyfirðinga á aðalfundi sínum, sem haldinn var 24. mars á Hótel Kjarnalundi, að lækka félagsgjöld næsta árs um nákvæmlega sömu prósentu, þ.e. 7,5%. Félagsgjöldin verða því eftir lækkun einungis 4.625 kr.“
 
Þarf ekki að hækka allt á hverju ári
 
„Við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar og stemma stigu við verðbólgunni, Þetta er fyrst og fremst hugsað sem táknræn hugvekja; að það þurfi ekki alltaf að hækka verð á hverju ári, heldur geta fyrirtæki og stofnanir skoðað hvaða tækifæri þau hafa til að hafa áhrif á verðlagið í landinu,“ segir Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, í tilkynningu frá félaginu.
 
Félagið hefur notið mikillar velvildar á starfssvæði sínu, segir í tilkynningunni, og fengið mikilvægan stuðning frá sveitarfélögum, fyrirtækjum og almenningi. „Sá stuðningur er lykilforsenda öflugs skógræktarstarfs og er nýttur til uppbyggingar og langtímaverkefna félagsins sem í dag hefur umsjón með 11 skógarreitum víðsvegar um Eyjafjörð,“ segir þar.
 
„Verðbólgan hefur áhrif á okkur öll og við viljum ganga á undan með góðu fordæmi og gera það sem við getum til að létta undir með fólki og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Um leið hvetjum við sem flest til að ganga til liðs við Skógræktarfélag Eyfirðinga og taka þátt í að vinna að vexti og eflingu skóganna okkar. Hægt er að gerast félagi á kjarnaskogur.is“