Síðasti „malarslagur“ Þórs og KA í efstu deild

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 82
Þór og KA mættust síðast á malarvelli á Íslandsmótinu í knattspyrnu laugardaginn 3. júní 1989. Meðfylgjandi mynd er einmitt tekin þá, þegar félögin gerðu markalaust jafntefli á Þórsvellinum. Malarvöllur Þórs var tekinn í notkun 1975 og var þar sem fyrsti gervigrasvöllur félagsins verður lagður í sumar.
KA-menn eru að sjálfsögðu bláir og gulir og Þórsarar klæddir rauðu og hvítu. Leikmennirnir eru, frá vinstri: Steingrímur Birgisson, Luka Kostic, Erlingur Kristjánsson, Örn Viðar Arnarson, Júlíus Tryggvason, Haukur Bragason og Stefán Ólafsson. Á milli Arnar Viðars og Júlíusar sést í Ólaf Lárusson dómara.
Sumarið 1989 er merkilegt í knattspyrnusögu Akureyrar fyrir þær sakir að KA varð Íslandsmeistari og er það eini Íslandsmeistaratitill Akureyringa í karlaflokki hingað til.
Yngsta kynslóðin veit hugsanlega ekki hvað átt er við með „malarvelli“ en þeir eldri taka vonandi að sér að útskýra það!
Myndin er birt í tilefni þess að í dag eru 50 ár síðan Akureyringar hófu keppni á Íslandsmótinu eftir að félögin hófu að keppa undir eigin merkjum í kjölfar þess að lið Íþróttabandalags Akureyrar féll úr efstu deild haustið 1974.
Fjallað er um tímamótin hér: