Fara í efni
Íþróttir

Sex öflugum var veitt heiðursviðurkenning

Sex Akureyringum var veitt heiðursviðurkenning Fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar á Íþróttahátíð Akureyrar í Hofi í síðustu viku, þegar kjöri íþróttafólks bæjarins var lýst.  

Heiðursviðurkenningarnar eru veittar fyrir vel unnin störf í þágu félags-, íþrótta- og æskulýðsmála á Akureyri. Þau sem hlutu viðurkenningarnar að þessu sinni eru Jórunn Eydís Jóhannesdóttir (Íþróttafélaginu Þór), Magnús Sigurður Sigurólason (Knattspyrnufélagi Akureyrar), Pétur Birgisson (KKA Akstursíþróttafélagi), Rúnar Steingrímsson (Íþróttafélaginu Þór), Stefán Jóhannsson (Knattspyrnufélagi Akureyrar) og Tómas Leifsson (Skíðafélagi Akureyrar).

Sexmenningarnir eru á myndunum. Í efri röð eru, frá vinstri, Jórunn Eydís Jóhannesdóttir, Magnús Sigurður Sigurólason og Pétur Birgisson.  Í neðri röð eru, frá vinstri, Rúnar Steingrímsson, Stefán Jóhannsson og Tómas Leifsson.