Segja Unni besta vin iðnaðarmannsins
Unnur er nýstofnað fyrirtæki frumkvöðlanna Júlíusar Þórs Björnssonar Waage og Friðriks Snæs Björnssonar sem hafa þróað hafa kerfið Unni Verkbókhald, sem þeir kalla besta vin iðnaðarmannsins! „Við þróum stafrænar lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum verktaka og iðnaðarmanna, hannaðar af fólki sem skilur áskoranir iðnaðarins af eigin raun,“ segir á vef fyrirtækisins.
Verkefni Júlíusar Þórs og Friðriks Snæs var síðastliðið haust valið úr Slipptöku DriftarEA í Hlunninn, prógramm þar sem veitt er heildstæða ráðgjöf, fjármagn og aðstöðu.
- Unnur verkbókhald er eitt af sjö nýsköpunarverkefnum sem DriftEA valdi í svokallaðan Hlunn og fá þau verkefni heildstæða aðstöðu, ráðgjöf og þjálfara hjá Drift EA. Auk þessa voru fjögur önnur öflug samfélagsleg verkefni valin í Drift EA sem fá ráðgjöf og aðstöðu.
- Akureyri.net mun kynna umrædd verkefni á næstunni, eitt í viku hverri.
- DriftEA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar sem tók til starfa á Akureyri á síðasta ári.
- Síðasta sumar fengu 13 verkefni inngöngu í nýsköpunarhraðal sem nefnist Slipptaka hjá DriftEA. Næsta skrefið að Slipptöku lokinni er Hlunnurinn incubator sem er að sænskri fyrirmynd en DriftEA er í samstarfi við sænska frumkvöðlasetrið Sting.
Besti vinur iðnaðarmannsins
„Við bjóðum upp á einfalt app í símann þar sem starfsmenn geta skráð tíma, akstur, efni og tekið myndir og sett beint á verkið,“ segja þeir félagar. Í appinu sé einnig hægt að sjá verklýsingar, skoða teikningar og stofna verkefni með verkkaupa. Fyrir stjórnendur sé þetta þægilegt vefviðmót þar sem hægt er að sjá gagnlegt mælaborð, merkja rafræna reikninga á verk og búa til sölureikninga.
„Við gáfum appið út í nýliðnum mánuði og hafa viðtökurnar verið vonum framar. Í dag þjónustum við 14 fyrirtæki, flest á Akureyri og nágrenni, en þessi hópur er ört stækkandi. Ef við ættum að lýsa okkur á einfaldan hátt myndum við segja að að Unnur sé besti vinur iðnaðarmannsins.“

Flókin excel skjöl heyra sögunni til
Forsaga verkefnisins er sú að frá 2020 hefur Júlíus verið að vera vinna í því að senda út reikninga fyrir pabba sinn, Björn Júlíusson, sem rekur pípulagningarfyrirtækið Hiti ehf. Þar var Júlíus búinn að koma upp mjög flóknu excel skjali sem talaði við önnur excel skjöl til að einfalda reikningagerð. Hinsvegar fóru nær alltaf um 20-30 klukkutímar í þetta hver einustu mánaðamót.
Við leit á lausnum fannst Júlíusi sá hugbúnaður sem til var annaðhvort allt of flókinn og óþjáll í notkun eða hann leysti ekki vandamálin sem hann var að reka sig á. Júlíus sá auglýsingu fyrir Slipptökunni hjá DriftEA og ákvað að heyra í Friðriki og í kjölfarið sendu þeir inn umsókn fyrir Unni Verkbókhald. Á þeim tíma var þetta lítið meira en löngun til að leysa vandamálið sem Júlíus var búinn að upplifa síðastliðin 5 ár.
„Fyrsta vandamál sem við settum alla orku í að leysa er sölureikningagerð en í dag geta notendur Unnar Verkbókhalds geta sent út reikninga á mínútum í stað að eyða mörgum klukkustundum í nokkra reikninga,“ segja Júlíus og Friðrik.
Kynntust í MA
„Við kynntumst á þriðja ári í Menntaskólanum á Akureyri þar sem við vorum saman í nemendafélaginu Hugin. Þar lærðum við að vinna lengi fyrir lítinn sem engan pening sem hefur komið sér vel á síðustu mánuðum!“

Friðrik er uppalinn í Skagafirði og með B.S. gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Eftir útskrift vann ég hjá Símanum Pay og var þar meðal annars að þróa fyrirtækjakortalausnina þeirra,“ segir Friðrik. Júlíus er frá Akureyri og er með B.S. gráðu í umhverfis og byggingarverkfræði úr HÍ. „Ég starfaði á verkfræðistofunum COWI og VSB þar sem ég vann í eftirliti og samgöngumálum,“ segir Júlíus.
Nýta sér gervigreindina
Júlíus og Friðrik segja það erfiðasta og mikilvægasta við að byrja með nýtt fyrirtæki sé líklega í flestum tilfellum að fá viðskiptavini. „Þakkarlega hefur það gengið ágætlega og erum við í dag með þéttan og sístækkandi hóp viðskiptavina sem hafa verið mjög sáttir hingað til. Óvæntast var hvað þetta var í rauninni létt. Þú ferð bara inn á skatturinn.is fylgir nokkrum skrefum et voila! Þú ert búinn að stofna fyrirtæki. Síðan reyndar flækjast hlutirnir aðeins þegar það kemur að virðisaukaskattskilum og reiknuðu endurgjaldi,“ segja Júlíus og Friðrik. „Annað óvænt er innkoma gervigreindar sem er óhætt að segja er búin að gjörbreyta hvernig við vinnum og hvernig við hugsum um okkar fyrirtæki. Fólk má ekki sofa á henni!“
Frábær reynsla hjá Drift EA
Júlíus og Friðrik hafa haft aðstöðu hjá DriftEA síðan í haust. „Slipptakan var eiginlega bara akkúrat það sem við vorum að leitast eftir til að byrja svona. Þau hafa skapað aðstæður fyrir okkur til að demba okkur í verkefni sem við hefðum líklega tiplað í kringum lengi áður en við hefðum gert eitthvað í því. Hlunnurinn hefur svo verið frábær reynsla. Aðstaðan í Drift er frábær og fólkið ekki síðra!“

Frá útgáfufögnuði sem haldinn var í Drift föstudaginn 13. mars.
Stórhuga um næstu skref
Unnur Verkbókhald hélt útgáfuhóf þann 13. mars síðastliðinn þar sem fagnað var með með viðskiptavinum, samstarfsaðilum og fjöldskyldu. „Þar var virkilega gaman að setjast niður og fagna en einnig að leyfa að fólki að sjá afköstin úr þeirra vinnu sem við höfum verið að leggja í síðastliðna sex mánuði,“ segir þeir. ,,Risa ljós á kærusturnar okkar sem þurftu að þola það að við fluttum frá þeim þar sem þær eru enn í námi í Reykjavík. Þær koma þó að námi loknu enda hvergi jafn gott að vera og á Akureyri.“
Strákarnir segja að næstu vikur og mánuðir fara í markaðs- og söluherferð. „Við erum komnir með vöru sem við og viðskiptavinirnir eru sáttir með en það þýðir ekkert ef við reynum ekki að dreifa boðskapnum. Síðan erum við með plön um áframhaldandi þróun sem við höldum að okkar menn í iðnaði verði spenntir fyrir. En við ljóstrum engu upp í bili …“
Júlíus og Friðrik hvetja síðan alla til að segja iðnaðarmanninum í lífi sínu frá Unni Verkbókhaldi. „Fyrstu 30 dagarnir eru fríir. Við munum einnig halda kynningarkvöld miðvikudaginn 15. apríl klukkan 20 á 4. hæð í Drift, þar verður kennsla á helstu fídusum ásamt aðstoð við uppsetningu.“ Júlíus og Friðrik bæta svo við að hægt sé að hafa samband við þá í gegnum heimasíðuna unnurverk.is, senda póst á sala@unnnurverk.is eða hringja í síma 841-8770.
