Fara í efni
Fréttir

Samið við Hyrnu um flugstöðina

Isavia hefur samið við byggingafélagið Hyrnu á Akureyri um viðbætur og breytingar á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Verkefnið felur í sér viðbyggingu við núverandi flugstöð og breytingu á núverandi húsnæði og nánasta umhverfi. Fyrsta skóflustunga að viðbyggingunni var tekin í júní síðastliðnum.

Tvö fyrirtæki lögðu inn tilboð í verkið, Húsheild í Mývatnssveit og Hyrna; tilboð Húsheildar hljóðar upp á tæpar 865 milljónir króna en tilboð Hyrnu upp á rúmar 810 milljónir króna. Þannig vill til að Húsheild hefur síðan keypt Hyrnu.

„Verkefnið sem hér um ræðir er 1.100 fermetra viðbygging við flugstöðina með góðri aðstöðu fyrir toll og lögreglu, fríhöfn og veitingastað. Áætlað er að heildarverkefninu verið lokið síðsumars 2023,“ sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlands, við Akureyri.net í sumar.

Skrifað verður undir samning við Hyrnu milli jóla og nýárs.